Fjögur norðlensk lið í efstu deild 1988
Það þykja tíðindi að KA og Þór skuli loksins vera bæði í efstu deild karla í fótbolta, enda hefur það ekki gerst frá árinu 2002. Spennan fyrir Bestu deildinni 2026 er því að vonum um það bil helmingi meiri en undanfarin ár í höfuðstað Norðurlands.
En væntanlega var enn meiri eftirvænting í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum fyrir 38 árum því árið 1988 léku fjögur lið af þessu svæði í efstu deild. Völsungur á Húsavík hafði leikið í deildinni í fyrsta skipti árið 1987 og hélt sæti sínu þar, og síðan bættist Leiftur frá Ólafsfirði í hópinn eftir mikið flug upp deildirnar árin á undan og lék í fyrsta skipti meðal þeirra bestu árið 1988.

Völsungur vann 2. deild, næst efstu deild Íslandsmótsins haustið 1986, og komst í fyrsta skipti upp í efstu deild í fyrsta skipti. Liðið lék þar næstu tvö ár. Á myndinni úr Morgunblaðinu skorar Jónas Hallgrímsson sigurmarkið í lokaleiknum gegn Selfossi úr víti. Jónas er faðir Hallgríms núverandi þjálfara KA.
Á þessum árum léku tíu lið í deildinni og því voru 40 prósent liðanna af Norðurlandi. Þar með fóru 40 prósent leikjanna fram á Akureyri, Húsavík og Ólafsfirði, eða að jafnaði tveir leikir af fimm í hverri umferð deildarinnar.
Í dag leika 12 lið í efstu deild og þetta jafngildir því nokkurn veginn að núna væru KA, Þór, Völsungur, Dalvík/Reynir og Magni öll í Bestu deildinni.
Gjaldkerar félaganna hafa vafalítið verið ánægðir með lífið sumarið 1988 því norðanliðin þurftu aðeins að fara sex suðurferðir hvert vegna Íslandsmótsins, í stað átta til níu ferðalaga á hverju tímabili.

Leiftur tryggði sér sæti í efstu deild í fyrsta skipti með sigri á Þrótti í Reykjavík í lokaumferð 2. deildar í september 1987. Þessar myndir birtust í Tímanum; til vinstri skorar Halldór Guðmundsson (númer 8) það sem reyndist sigurmarkið og til hægra fagna bræðurnir Steinar, tl vinstri, og Óskar Ingimundarsynir. Óskar þjálfaði liðið og var einnig leikmaður.
En sælan var skammvinn. KA og Þór sigldu lygnan sjó um miðja deildina mest allt tímabilið og enduðu í fjórða og sjötta sæti, KA með 27 stig og Þór með 24. Leiftur fór ágætlega af stað, tapaði aðeins tveimur af fyrstu sjö leikjum sínum og lagði KA, 2-1, á malarvellinum í Ólafsfirði í sjöundu umferð. Þingeyingurinn Hörður Benónýsson og Reyðfirðingurinn Gústaf Ómarsson skoruðu fyrir Leiftur en Valsmaðurinn Anthony Karl Gregory náði að svara fyrir KA.
En það reyndist eini sigur Ólafsfirðinga sem smám saman sigu niður í fallsæti, fengu þar félagsskap frá Völsungi sem hafði aðeins fengið tvö stig úr fyrstu átta leikjum sínum, og liðin tvö urðu afgerandi neðst í deildinni með aðeins 9 stig hvort þegar upp var staðið um haustið.

Halldór Áskelsson skoraði 7 mörk fyrir Þór á Íslandsmótinu 1988, Þorvaldur Örlygsson 9 fyrir KA, Jónas Hallgrímsson 4 fyrir Völsung og Steinar Ingimundarson 6 fyrir Leiftur.
Liðunum á Norðurlandi í deildinni fækkaði því snarlega úr fjórum í tvö fyrir tímabilið 1989, sem reyndist samt sögulegt í meira lagi fyrir Akureyri því þá urðu KA-menn Íslandsmeistarar í fyrsta og eina skiptið til þessa. Leiftur komst aftur í deildina árið 1995 og lék þar í sex ár en Völsungur hefur enn ekki náð að endurtaka afrekið.
Ef innbyrðis úrslit Norðurlandsliðanna í deildinni þetta sögulega ár, 1988, eru skoðuð er niðurstaðan sú að Þór fékk 12 stig og tapaði ekki leik fyrir Norðurlandsliði. KA fékk 10 stig, Leiftur 5 og Völsungur 5.
Leikir liðanna fóru þannig, umferðin í deildinni á undan. KA og Þór áttu að mætast í 1. umferð en leiknum var frestað til 16. júní vegna vallarskilyrða.
- (3.) umferð) Leiftur - Þór 1-1
- (5.) KA - Völsungur 1-0
- (1.) KA - Þór 1-1
- (6.) Völsungur - Þór 0-0
- (7.) Leiftur - KA 2-1
- (9.) Leiftur - Völsungur 0-1
- (10.) Þór - KA 3-2
- (12.) Þór - Leiftur 2-1
- (14.) Völsungur - KA 0-4
- (15.) Þór - Völsungur 2-1
- (16.) KA - Leiftur 2-1
- (18.) Völsungur - Leiftur 1-1
Þorvaldur Örlygsson, núverandi formaður KSÍ, var markahæstur KA-manna í deildinni þetta ár með 9 mörk, Halldór Áskelsson skoraði 7 mörk fyrir Þór, Steinar Ingimundarson 6 mörk fyrir Leiftur og Jónas Hallgrímsson (faðir núverandi þjálfara KA) skoraði 4 fyrir Völsung.
- KA tekur á móti Stjörnunni í dag og Þórsarar sækja Valsmenn heim í Reykjavík, í fyrstu umferð Bestu deildarinnar. Víðir Sigurðsson skrifaði aðra grein fyrir akureyri.net sem birtist á föstudag:
Akureyrarlið í efstu deild í 48. skipti

Akureyrarblaðið Dagur ræddi við Sigurð Hannesson framkvæmdastjóra Knattspyrnusambands Íslands við upphaf Íslandsmótsins 1988.