Fara í efni
Pistlar

Frábær sigur Þórs en sárt tap KA

Ingimar Arnar Kristjánsson gerði sigurmark Þórs gegn Val að Hliðarenda í dag. Hér fagnar Ingimar eftir að hann gerði markið sem tryggði Þór sigur á Þrótti í lokaumferð Lengjudeildarinnar í fyrra og þar með sigur í deildinni. Til hægri fagnar Emil Atlason eftir að hann náði forystu fyrir Stjörnuna á upphafsmínútum leiksins gegn KA á Greifavellinum í dag. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Þór sigraði Val 2:1 í Reykjavík í fyrstu umferð Bestu deildarinnar í knattspyrnu í dag en KA-menn urðu að bíta í að súra epli að tapa 3:2 fyrir Stjörnumönnum á heimavelli. Þetta var fyrsti leikur nýliða Þórs í efstu deild síðan haustið 2014. 

Framherjinn Ingimar Arnar Kristjánsson gerði sigurmark Þórs þegar lítið var eftir, með glæsilegu skoti eftir hraða sókn, um það bil fjórum mínútum eftir að hann kom inná. 

Dagur Orri Garðarsson skoraði fyrir Val á 27. mínútu en Daninn Christian Greko Jakobsen jafnaði fyrir Þór 10 mínútum síðar; hann skallaði boltann laglega í Valsmarkið eftir fyrirgjöf hins 17 ára Einars Freys Halldórssonar.

KA fékk á sig tvö mörk snemma leiks í dag; Emil Atlason skoraði á 3. mínútu og Örvar Eggertsson 10 mín. síðar. Birgir Baldvinsson minnkaði muninn á 33. mín., Emil skoraði öðru sinni á 56. mín. og Jakob Héðinn Róbertsson, 18 ára framherji sem kom til KA frá Völsungi í vetur, minnkaði muninn fyrir KA.  

Nánar verður fjallað um leikina í kvöld

Verk gömlu meistaranna

Jóhann Árelíuz skrifar
12. apríl 2026 | kl. 06:00

Birki og beit

Sigurður Arnarson skrifar
08. apríl 2026 | kl. 08:00

Hús dagsins: Hafnarstræti 35

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
07. apríl 2026 | kl. 22:00

Þegar lífið hægir á manni

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
07. apríl 2026 | kl. 08:00

Höfðingsskapur á Hofi

Jóhann Árelíuz skrifar
05. apríl 2026 | kl. 06:00

Af húsaflutningum Ferðafélags Akureyrar

Hjalti Jóhannesson skrifar
04. apríl 2026 | kl. 10:30