Fara í efni
Pistlar

Höfðingsskapur á Hofi

EYRARPÚKINN - 84

Einar Jónsson fékk aldrei nóg að borða í uppvextinum.
 

Einna elstum Hraunfellsbræðra var honum komið fyrir út í sveit og átti ekki sjö dagana sæla.

Þó tók steininn úr þegar hann réði sig í vinnumennsku að prestssetrinu á Hofi.

Hraus mér hugur við þeim lýsingum undir dúnsæng mömmu.

Eitt sinn nær jólum og piltarnir hálfærir af sulti komust þeir yfir reykt kjötstykki undir skemmurjáfri. Sigruðu myrkrið og maginn samviskuna og gleyptu þeir í sig kjötið hrátt.

Von bráðar komst upp um verknaðinn enda guðsmaðurinn gætinn veraldlegra gnægta og ekki frítt við að séra Jakobi væri skemmt þegar hann tilkynnti piltunum að þeir hefðu lagt sér til munns reykt hundakjöt sem prestur ætlaði í hákarlabeitu.

Ældu vinnumenn kjötinu milli þúfna en kom ekki að sök því hundar prests rifu það í sig.

Var piltunum refsað fyrir verknaðinn og minnkað enn við þá í mat um sinn.

Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.

    • Á sunnudögum um langa hríð birti akureyri.net kafla úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki Jóhanns Árelíuzar sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003. Höfðingsskapur á Hofi er kafli úr bókinni Sveskjur í sólarlaginu, síðari bók Jóhanns um Eyrarpúkann en þar segir einkum frá dvöl drengsins á æskuslóðum föður hans í Vopnafirði. Bókin kom út 2010.

Kreppuáll, fuglalíf og ástarglóð

Jóhann Árelíuz skrifar
05. júlí 2026 | kl. 06:00

Hagaskógrækt

Sigurður Arnarson skrifar
01. júlí 2026 | kl. 10:30

Byggðu líkama fyrir lífið

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
30. júní 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Oddeyrargata 26 (100 ára hús I)

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
29. júní 2026 | kl. 06:00

Fór ekki í ljós nema tvisvar í viku

Orri Páll Ormarsson skrifar
26. júní 2026 | kl. 09:00

Skógarbeit

Sigurður Arnarson skrifar
24. júní 2026 | kl. 10:10