Fara í efni
Pistlar

Komnir og farnir hjá KA fyrir tímabilið

Þrír sem komu til KA fyrir leiktíðina. Frá vinstri: Diego Montiel, Jeppe Pedersen, báðir frá Vestra, og Danijel Dejan Djuric frá Króatíu. Myndir: Ármann Hinrik og KA

Talsverðar breytingar hafa orðið á karlaliði KA í knattspyrnu frá síðasta keppnistímabili. Helstu skörðin sem höggvin hafa verið í liðið eru Ívar Örn Árnason, fyrirliði og máttarstólpi í vörninni, sem genginn er til liðs við Blika, Birnir Snær Ingason fór í Stjörnuna og Ingimar Torbjörnsson Stöle í Val. Þá eru þeir Bjarni Aðalsteinsson og Marcel Römer báðir farnir til Danmerkur. Hrannar Björn Steingrímsson meiddist fyrir skömmu og verður ekkert með í sumar.

En KA hefur líka fengið góðan liðsstyrk. Sveinn Margeir Hauksson er kominn „heim“ á láni frá Víkingi og Jakob Héðinn Róbertsson er spennandi leikmaður sem KA fékk frá Völsungi. Félagarnir Diego Montiel og Jeppe Pedersen komu frá Vestra og Samuel Kroon frá Svíþjóð en stærsta nafnið er án efa Danijel Dejan Djuric, sem KA keypti frá Istra í Króatíu. Hann var einn mest spennandi leikmaður efstu deildar áður en hann fór til Króatíu og beðið er með mikilli eftirvæntingu eftir því hvernig hann spjarar sig með KA.

Ekki hefur verið lokað fyrir félagaskipti ennþá, þannig að liðin geta gert fleiri breytingar á leikmannahópum sínum.

Vefsíðan fotbolti.net hefur tekið saman heildarlista yfir leikmenn sem hafa komið og farið frá liðunum í deildinni frá síðasta tímabili:

KOMNIR TIL KA

Danijel Dejan Djuric frá Króatíu
Diego Montiel frá Vestra
Jeppe Pedersen frá Vestra
Samuel Kroon frá Svíþjóð
Sveinn Margeir Hauksson frá Víkingi á láni
Jakob Héðinn Róbertsson frá Völsungi
Breki Hólm Baldursson frá ÍR (var á láni)
Ívar Arnbro Þórhallsson frá Völsungi (var á láni)
Kári Gautason frá HK (var á láni)
Ívar Logi Jóhannesson frá Hetti
Þórhallur Ási Aðalsteinsson frá Hetti
Dagbjartur Búi Davíðsson frá Þór (var á láni)
Bjarki Fannar Helgason frá Hetti/Hugin (var á láni)
Árni Veigar Árnason frá Hetti/Hugin (var á láni)

FARNIR FRÁ KA

Ívar Örn Árnason í Breiðablik
Birnir Snær Ingason í Stjörnuna
Bjarni Aðalsteinsson til Danmerkur
Marcel Römer til Danmerkur
Ingimar Torbjörnsson Stöle til Vals
Jonathan Rasheed til Gautaborgar
Viðar Örn Kjartansson á Selfoss
Andri Fannar Stefánsson í Magna
Dagur Ingi Valsson í Keflavík
William Tonning til Nýja Sjálands

Verk gömlu meistaranna

Jóhann Árelíuz skrifar
12. apríl 2026 | kl. 06:00

Birki og beit

Sigurður Arnarson skrifar
08. apríl 2026 | kl. 08:00

Hús dagsins: Hafnarstræti 35

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
07. apríl 2026 | kl. 22:00

Þegar lífið hægir á manni

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
07. apríl 2026 | kl. 08:00

Höfðingsskapur á Hofi

Jóhann Árelíuz skrifar
05. apríl 2026 | kl. 06:00

Af húsaflutningum Ferðafélags Akureyrar

Hjalti Jóhannesson skrifar
04. apríl 2026 | kl. 10:30