Fara í efni
Pistlar

Verk gömlu meistaranna

EYRARPÚKINN - 85

Þeir voru fleiri sem léku á orgel í Vopnafirði en bræðurnir í Selárdal.
 
Á lognkyrrum síðkvöldum og sunnudagseftirmiðdögum mátti heyra séra Jakob fara fingrum nóturnar hvítu og svörtu og lék prestur verk gömlu meistaranna, tónskáld eins og Bach og Beethoven.
 
Séra Jakob þótti tóna allra presta best á sinni tíð og hljómaði vel í hinni nýbyggðu Hofskirkju og hann kom einnig fram í Ríkisútvarpinu og söng einsöng.
 
Frú Guðbjörg hafði tögl og hagldir í kvenfélaginu og hélt snjallar ræður á mannamótum.
 
Ekki þótti vinnupiltum verra að hlýða á prest sinn og verkstjóra undir vegg á sunnudegi og svifu bringukollar og sviðakjammar fyrir sjónum pilta sem þeim rann í brjóst í blíðunni.
 

Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.

    • Á sunnudögum um langa hríð birti akureyri.net kafla úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki Jóhanns Árelíuzar sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003. Verk gömlu meistaranna er kafli úr bókinni Sveskjur í sólarlaginu, síðari bók Jóhanns um Eyrarpúkann en þar segir einkum frá dvöl drengsins á æskuslóðum föður hans í Vopnafirði. Bókin kom út 2010.

Samanburður broddhlyns og garðahlyns

Sigurður Arnarson skrifar
14. október 2026 | kl. 10:45

Lífið í búningsklefanum

Pétur Guðjónsson skrifar
12. október 2026 | kl. 13:30

Vænting

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
11. október 2026 | kl. 06:00

Þegar vinnan er farin í hundana

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Norðurgata 26

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
09. október 2026 | kl. 10:45

Tegundir birkiættkvíslarinnar

Sigurður Arnarson skrifar
07. október 2026 | kl. 14:30