Fara í efni
Íþróttir

„Viljum gefa ungum leikmönnum tækifæri“

Sigurður Höskuldsson þjálfari Þórs eftir sigurinn á Þrótti í Reykjavík í fyrrahaust þegar Þórsarar tryggðu sér sigur í Lengjudeildinni og sæti í Bestu deildinni í ár. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, segir að strákarnir séu spenntir fyrir fyrsta leik Þórs í efstu deild karla í knattspyrnu í 12 ár. Þórsarar byrja mótið á tveimur útileikjum og fyrsti leikurinn er gegn Valsmönnum syðra í dag.

En hvernig líst honum á sumarið og hver eru markmiðin? Flestir sérfræðingar og spámenn gera ráð fyrir að Þórsarar verði í fallbaráttu og 10. sætið hefur oft verið nefnt í spádómum þeirra. Siggi segir eðlilegt að horfa til þess að reyna að tryggja sætið í deildinni. Það hlýtur að vera byrjunarmarkmiðið hjá öllum liðum sem koma upp í deildina að halda sér þar, segir Siggi en vill ekki endilega festa sig við það markmið. Annars höfum við oftast ekki verið í einhverjum markmiðasetningum en það verður yfirleitt alltaf til sameiginlegt markmið hjá hópnum bara sjálfkrafa, bara eftir því hvernig mótið er að spilast, segir Siggi.

Sérfræðingaspárnar hafa verið býsna keimlíkar í vor og meðal annars virðast flestir gera ráð fyrir að Víkingar fari létt með að verja Íslandsmeistaratitilinn. Siggi tekur undir það og segir það eðlilegasta hlutann af öllum þessum spám að Víkingum sé spáð toppsætinu. Þeir séu með langsterkasta og breiðasta hópinn.

Leikmannahópurinn fullmótaður

Aðspurður segist þjálfarinn vera sáttur við hópinn og ekki sé verið að svipast um eftir fleiri leikmönnum. „Glugginn er opinn aðeins inn í fyrstu umferðirnar, þannig að það er smá svigrúm til að bregðast við ef eitthvað gerist í fyrstu umferðunum en eins og staðan er núna og ef ekkert kemur upp á næstu vikur þá er þetta okkar hópur,“ segir Siggi.

Í leikmannahópi Þórs er hátt hlutfall uppalinna Þórsara og margir þeirra hafa ekki mikla reynslu úr efstu deild. Þjálfarinn hefur ekki áhyggjur af því að það muni reynast veikleiki. „Það er alltaf þannig þegar ungt lið kemur upp og strákarnir hafa ekki haft sjensinn á því að spila í efstu deild og við förum ekki að kasta þeim út úr liðinu fyrir að hafa ekki spilað í efstu deild þegar við erum komnir þangað. Ég held að það sé mjög eðlilegt,“ segir Siggi. „Við fengum inn Atla Sigurjónsson, sem er einn leikjahæsti leikmaður deildarinnar, og fengum Ágúst Eðvald, þannig að við sóttum leikmenn með mikla reynslu úr deildinni. Sóttum Bjarna Guðjón líka, sem er búinn að vera tvö tímabil í efstu deild og líka reynda útlendinga. Við viljum spila á okkar ungu leikmönnum og viljum gefa þeim tækifæri,“ segir Siggi og kjarnar þar með stefnuna sem Þórsarar hafa markað undanfarin ár. „Við teljum þá vera klára, þeir þurfa bara að fjölga þeim leikjum sem þeir spila til þess að búa til reynsluna til að verða efstudeildarleikmenn. Þeir eru í kjörstöðu hjá okkur til þess,“ segir Siggi.

Ekki smeykur við að byrja á tveimur útileikjum

Stemmning kringum liðið og samheldni hafa oft verið nefnd sem mikilvægur styrkleiki fyrir Þórsliðið. Siggi er spurður hvort það sé verra í því samhengi að byrja mótið á tveimur útileikjum. „Neinei, ég held að ef okkur er alvara í þessu að þá verði stemmningin á þessum tveimur útileikjum mjög góð, miðað við t.d. hvernig við náðum upp stemmningunni á Þróttaravellinum í fyrra þegar við tryggðum okkur upp. Og þá kannski bara byggist hún ennþá meira upp áður en við mætum síðan í fyrsta heimaleik,“ segir Siggi og er klár í fyrsta leik mótsins. „Já, við erum bara spenntir, flestallir eru heilir, þetta lítur að okkar mati bara mjög vel út,“ segir Sigurður Heiðar Höskuldsson að lokum.