Fara í efni
Pistlar

Jólahefðirnar mínar – Andrea Pála

JÓLAHEFÐIRNAR MÍNAR
Andrea Pála Brynjarsdóttir,
9. bekk Lundarskóla skrifar

Í minni fjölskyldu gerum við allt þetta klassíska á aðventunni. Við gerum laufabrauð með móður fjölskyldunni minni, og síðan gerum við fjölskyldan samverudagatal, bökum smákökur, förum út að renna, horfum á jólamyndir og spilum meðan við hlustum á jólatónlist. Við breytum líka gróðurshúsinu okkar í jólahús með vinafólkinu okkar og drekkum heitt kakó og borðum smákökur í jólahúsinu okkar. Á Þorláksmessu borðum við skötu með vinafólki okkar sem við kynntumst á Möðruvöllum og sú hefð hefur verið í yfir 35 ár. Ég smakka smá af skötunni, en annars fæ ég mér saltfisk og meðlæti. Við förum alltaf í frekar gömlum og ljótum fötum í skötuboðið af því við lyktum svo illa eftir skötuna, og fötin fara beint í þvottavélina þegar við komum heim úr boðinu.


Um miðjan desembe
r heldur amma Pálína árlegt jólaboð heima hjá sér. Þar býður hún upp á hangikjöt, uppstúf og meðlæti. Við förum í leiki og syngjum saman, og erum mjög mörg og mikið fjör. Þegar ég var 8 ára gömul sömdum við amma texta við lagið „Skín í rauða skotthúfu“. Þetta lag syngjum við svo öll saman í jólaboðinu hjá ömmu á hverju ári og þetta er mín uppáhalds jólahefð.

Nú er komin aðventa,
jólaboðið byrjað.

Hangi
- hangi - hangikjöt,
borða allir saman.

Kartöflur og uppstúfur,

grænar baunir, rauðrófur.

Malt og appelsín,

beina leið til þín.

Við borðum þetta saman,

og höfum býsna gaman.

Vænting

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
11. október 2026 | kl. 06:00

Þegar vinnan er farin í hundana

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Norðurgata 26

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
09. október 2026 | kl. 10:45

Tegundir birkiættkvíslarinnar

Sigurður Arnarson skrifar
07. október 2026 | kl. 14:30

Ljósi varpað á leyndardóma heilans

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
07. október 2026 | kl. 14:00

Af hverju getur verið svona erfitt að slaka á?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
06. október 2026 | kl. 06:00