Fara í efni
Pistlar

Heilahristingur

EYRARPÚKINN - 42

Fimm ára að aldri fékk ég fyrsta heilahristinginn þegar ég var skotinn í hausinn af Bjössa rummung.

Jafnhattaði Björn fimmtíu kílóum á fermingardaginn.

Nonni stumraði yfir mér og sá ég fjórfaldan stjörnufans en lenti þó ekki eins illa í því og Ljósvíkingurinn forðum og kunni aukinheldur athyglinni sem að mér beindist ágætlega.

Eftir þrjár mínútur var ég sprottinn á fætur og fórnaði mér í lappirnar á stóru strákunum af fullkominni þráhyggju og miskunnarleysi, jafn óttalaus sem þindarlaus.

Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.

  • Heilahristingur er kafli úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003.

Erfðafræði birkis

Sigurður Arnarson skrifar
18. nóvember 2026 | kl. 11:30

Hvernig er jafnvægið?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
17. nóvember 2026 | kl. 06:00

Hið næstum heimsfræga hjóltré

Sigurður Arnarson skrifar
11. nóvember 2026 | kl. 08:00

Akureyrin í Þorvaldi

Hjörleifur Hjartarson skrifar
09. nóvember 2026 | kl. 17:30

Hús dagsins: Hafnarstræti 67; Skjaldborg

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
08. nóvember 2026 | kl. 06:00

Hraunfellsbræður

Jóhann Árelíuz skrifar
08. nóvember 2026 | kl. 06:00