Fara í efni
Pistlar

Heimildarmynd um baráttu Grímseyinga

Heimildarmyndin Eyríki, eftir írsk/rússneska leikstjórann Nikolai Galitzine, verður frumsýnd í Sambíóunum á Akureyrarvöku föstudaginn 28. ágúst klukkan 18. Myndin fjallar um baráttu Grímseyinga fyrir framtíð samfélagsins eftir að Miðgarðakirkja brann til grunna.

Í myndinni er fylgst með Grímseyingum þegar þeir standa frammi fyrir þeirri áskorun að endurreisa kirkjuna, en um leið vakna stærri spurningar um framtíð byggðar í einu afskekktasta samfélagi Íslands. Baráttan snýst því ekki aðeins um kirkjubygginguna heldur einnig um tilverurétt samfélagsins og hvort Grímsey eigi áfram að vera heimili fólks til framtíðar.

Í fréttatilkynningu frá framleiðendum myndarinnar kemur fram að eftir frumsýninguna verði leikstjóri myndarinnar til svara og einnig Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri Akureyrarbæjar. Búast megi við fjörugum umræðum um myndina og framtíð Grímseyjar.

Eyríki hefur þegar vakið athygli á alþjóðlegum vettvangi. Myndin er tilnefnd sem besta norræna heimildarmyndin á Nordisk Panorama-kvikmyndahátíðinni og var valin í heimildarmyndadagskrá Cannes-kvikmyndahátíðarinnar í vor sem hluti af 5Nordics.

Tvær aukasýningar verða á myndinni í Sambíóunum á Akureyri, 31. ágúst og 3. september.

Hús dagsins: Norðurgata 26

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
09. október 2026 | kl. 10:45

Tegundir birkiættkvíslarinnar

Sigurður Arnarson skrifar
07. október 2026 | kl. 14:30

Ljósi varpað á leyndardóma heilans

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
07. október 2026 | kl. 14:00

Af hverju getur verið svona erfitt að slaka á?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
06. október 2026 | kl. 06:00

Eigum við að borga brúsann?

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
03. október 2026 | kl. 06:00

Nánasta fjölskylda birkis

Sigurður Arnarson skrifar
30. september 2026 | kl. 12:30