Fara í efni
Pistlar

Kjörkassi úr Grímsey „vistaður“ í fangaklefa

Myndir: Þorgeir Baldursson

Siglt var með kjörgögn úr Grímsey til Dalvíkur í dag og þau átti að „vista“ í fangaklefa á lögreglustöðinni á Dalvík þar til menn á vegum kjörstjórnar á Akureyri voru væntanlegir um sexleytið til að sækja gögnin.

Það var Bjarni Reykjalín Magnússon, útgerðarmaður og skipstjóri í Grímsey, sem sigldi með kjörgögnin úr eyjunni á Ásdísi ÓF 9 og tók siglingin um tvær klukkustundir. Þegar Bjarni sigldi inn í höfnina á Dalvík biðu lögregluþjónar á bryggjunni og tóku við hinum dýrmæta farmi.

Fulltrúar kjörstjórnar verða svo á bryggjunni á Árskógssandi þegar Hríseyjarferjan Sævar leggst þar að laust fyrir klukkan hálf átta. Þaðan liggur leiðin, með kjörgögn úr akureyrsku eyjunum tveimur, í Verkmenntaskólann á Akureyri þar sem kjörstjórn er með aðsetur og atkvæði verða talin.

Elrið og þjóðsögurnar

Sigurður Arnarson skrifar
28. október 2026 | kl. 15:30

Mannúðarlánastefna og biksvartur húmor

Rakel Hinriksdóttir skrifar
28. október 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Hríseyjargata 6

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
28. október 2026 | kl. 01:30

Hús dagsins: Norðurgata 33

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
25. október 2026 | kl. 21:00

Beitarkóngur á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
25. október 2026 | kl. 06:00

Ber í skógi

Sigurður Arnarson skrifar
21. október 2026 | kl. 12:00