Fara í efni
Pistlar

LP

AKUREYRI ÆSKU MINNAR – 83

Gunni bróðir sagði mér að Bítlarnir væru hættir. Og af því að hann var auðvitað fimm árum eldri en ég, skildi ég lítið sem ekkert í þessum skælum hans. Varla gæti það verið endir alls á Syðri-Brekkunni þótt einhver hrynsveit út í Bretlandi væri að ljúka störfum, eins og karl faðir okkar hafði haft á orði við hann.

En Gunni var heltekinn, eins og það hét um 1970, hafði safnað sérhverri plötu sveitarinnar frá því hann mundi eftir sér, og átti þær allar að tölu, að hann hélt, en var þó alltaf að telja, að því ég man.

Svo ég fór að skoða safnið hans. Það lá í rekkum. Vandlega raðað í skilrúm sín í plötuskápnum eftir aldri og útgáfu. Allt frá Please Please Me til Abbey Road, og ég man ekki betur en að sjálf umslögin hefðu dugað í þá dáleiðslu sem átti fyrir mér að liggja, svo flott sem þau voru í litum sínum og lögun.

Svo hvarf maður með öllu inn í algleymi taktsins. Músíkin frá Bítlaborginni tók mann herfangi. Og næstu misserin dvaldi maður sjálfviljugur í besta klefa heims, sjálfum heyrnatólunum á heimilinu, og vildi ekki fyrir nokkurn mun sleppa þaðan í bráð.

En plöturnar rispuðust. Þær áttu það til. Enda nálin gjarnan færð á sama lagið, aftur og aftur. Og hitti ekki alltaf á byrjunina. En af því að ég vissi upp á mig skömmina, eftir að hafa farið full til frjálsum höndum um Long play safnið hans Gunna heima í Espilundi, og jafnvel misnotað það, afréð ég einn daginn að nú væri það komið að mér að þrífa það.

Ég setti á mig uppþvottahanska og skrúbbaði báðar hliðar á öllu safninu og lagði það til þerris á ofnaverki heimilisins. Sem var óklókt. Þar undust þær allar og voru ónýtar til frekari spilunar á Syðri-Brekkunni, svo úr varð bil milli bræðra.

Sigmundur Ernir er fæddur á Akureyri 1961. Pistlar hans um æskuárin í heimabænum á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar birtast alla mánudaga á Akureyri.net.

  • Í NÆSTU VIKU: MOKKASKINN

Hús dagsins: Aðalstræti 54 og 54a

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
23. mars 2026 | kl. 06:00

Skammtað í aska

Jóhann Árelíuz skrifar
22. mars 2026 | kl. 06:00

Haldið á brattann

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. mars 2026 | kl. 06:00

Tær var sú fegurð, A 7359

Orri Páll Ormarsson skrifar
20. mars 2026 | kl. 10:00

Öskubuska, Elle Woods og Sandy í Grease

Rakel Hinriksdóttir skrifar
19. mars 2026 | kl. 13:00

Tré ölrakóngsins – Fyrri hluti

Sigurður Arnarson skrifar
18. mars 2026 | kl. 08:30