Flækjum ekki hlutina
HEILSA – 11
Þegar lundin er þung eða orkan lítil reyni ég að muna eftir því að staldra við og spyrja mig nokkurra einfaldra spurninga:
- Hef ég hreyft mig reglulega undanfarið?
- Hef ég varið tíma úti?
- Hef ég hitt fólkið mitt og átt nærandi samskipti?
- Hef ég hugað að svefnvenjum mínum?
- Er ég að næra mig vel?
- Er ég að verja of miklum tíma við skjáinn?
Þetta eru einfaldir hlutir og þeir skipta meira máli en við gerum okkur grein fyrir.
Sjálf þarf ég reglulega að minna mig á að flækja ekki hlutina og leita ekki langt yfir skammt þegar kemur að því að styðja við eigin líðan.
Þegar okkur líður ekki alveg nógu vel eigum við það til að leita að stórum skýringum. Við veltum fyrir okkur hvort við þurfum að gera stórtækar breytingar á lífinu og hugurinn fer auðveldlega í að greina allt í öreindir til að finna svarið.
Í daglegu lífi, þar sem við rúllum áfram á sjálfstýringunni, er auðvelt að missa sjónar á grunninum og vanmeta mátt hinna einföldu hluta sem gera okkur gott. Dagarnir eru fullir af verkefnum og skyldum. Það koma síðan upp veikindi og ófyrirséðar breytingar á dagskrá og áður en maður veit af hefur maður ekki farið út allan daginn, hreyft sig lítið og kannski ekki gefið sér tíma til að hitta fólk eða hvíla sig almennilega. Þá getur líðanin smám saman orðið þyngri án þess að það sé endilega ein stór ástæða fyrir því.
Þegar ég tek eftir þessu hjá sjálfri mér reyni ég að fara aftur í grunninn. Stuttur göngutúr gerir meira fyrir lundina en maður heldur. Samtal við vin eða vinkonu getur létt heilmikið á manni. Að hlúa að svefnvenjum, minnka skjátíma og borða næringarríkan mat hefur meiri áhrif á orkuna en við gerum okkur grein fyrir. Við þurfum ekki að gera allt í einu og alls ekki fullkomlega. Mikilvægast er tékka inn hjá sér og skoða hvar maður getur hlúð aðeins betur að sér.
Þetta þýðir ekki að allar tilfinningar eða erfið tímabil hafi einfaldar skýringar. Lífið er flókið og stundum þarf meiri tíma, dýpri vinnu og stuðning til að takast á við hlutina og aðstæður sem koma upp í lífinu.
En áður en við leitum langt getur verið gott að líta á grunninn.
Hreyfing, svefn, næring, ferskt loft og tengsl við annað fólk eru einfaldar en öflugar stoðir sem halda utan um líðan okkar á hverjum degi.
Þess vegna getur verið gott að staldra reglulega við og spyrja sig: Er ég að sinna grunnþörfunum mínum? Stundum byrjar betri líðan einmitt þar.
Guðrún Arngrímsdóttir er þjálfari og markþjálfi með diplómu í jákvæðri sálfræði ásamt því að vera önnur eigenda Sjálfsræktar heilsumiðstöðvar. Pistlar hennar og Hrafnhildar Reykjalín Vigfúsdóttur birtast annan hvern þriðjudag á akureyri.net.
Frostaveturinn 1918
Börkur berst við kerfið
Bræðrafell
Málabraut, er það ekki bara eitthvað hobbí?