Þurfum við alltaf að vera að verða betri?
HEILSA – 25
Pælingar um að vera þokkalega miðlungs og gera nógu vel
Undanfarið hef ég verið að hugsa um kröfurnar sem við setjum á okkur og allt það sem við ætlumst til af okkur sjálfum. Margt af því er í sjálfu sér bæði gott og gagnlegt, en þegar allt er lagt saman getur þetta orðið ansi langur listi. Við eigum helst alltaf að vera á leiðinni eitthvert með okkur sjálf og það sem við erum að gera. Verða flinkari, sterkari, hraustari, afkastameiri, rólegri, skipulagðari og auðvitað miklu betri í að hugsa um okkur sjálf. Það virðist alltaf vera eitthvað sem mætti bæta.
Þegar kemur að heilsunni eigum við að sofa vel, borða vel, hreyfa okkur nóg, drekka rétt magn af vatni, ná tilteknum skrefafjölda, hugleiða, anda rétt og passa upp á streituna. Og úrin okkar geta síðan sagt okkur hvernig við sváfum og hvernig við erum stemmd fyrir daginn og hvort líkaminn sé tilbúinn í álag. Er til dæmis möguleiki á að við séum farin að treysta meira á það sem tækin segja okkur en það sem við finnum og upplifum sjálf?
Það er vissulega verkefni okkar í lífinu að hugsa vel um okkur og taka ábyrgð á eigin heilsu, en hvenær varð það að svona stóru verkefni að hugsa vel um sig? Þurfum við endilega að hámarka alla þessa þætti? Og er það endilega betra?
Það er mikið talað um optimization í heilsu- og vellíðunarheiminum, eða bestun. Í grunninn snýst hún um stöðuga viðleitni til að bæta og fínstilla. Svefninn getur orðið betri, mataræðið markvissara, æfingarnar árangursríkari, rútínan betri og orkan meiri. Svo höfum við alls kyns öpp og tæki sem gera okkur kleift að mæla þetta allt saman og fylgjast enn betur með.
Þetta getur auðvitað verið bæði gagnlegt og skemmtilegt, sérstaklega fyrir þau sem eru að æfa á afreksstigi, undirbúa sig fyrir keppni eða eru með ákveðið markmið sem þau langar að ná. Í þeim tilvikum getur skipt höfuðmáli að fínstilla æfingar, næringu, svefn og endurheimt. Þá er tilgangurinn skýr og mælingarnar geta hjálpað til við að komast þangað sem fólk ætlar sér.
En við erum ekki öll að æfa fyrir eitthvað. Fyrir flest snúast hreyfing, heilsurækt og sjálfsrækt fyrst og fremst um að hugsa vel um okkur, halda líkamanum í góðu standi, hlúa að andlegu hliðinni og styðja við almenna heilsu og daglegt líf.
Það er bæði þreytandi og lýjandi að lifa í því hugarfari að það vanti alltaf eitthvað upp á og að það sem við erum að gera núna sé aldrei alveg nóg.
Það er nefnilega alltaf hægt að finna eitthvað sem mætti bæta. En þurfum við alltaf að vera að leita að því? Má sumt ekki bara vera nógu gott?
Ég held að mörg okkar séum orðin ansi vön því að horfa á okkur sjálf út frá því sem vantar upp á. Hvað við hefðum átt að gera betur. Hverju við náðum ekki. Hvar við hefðum getað lagt meira á okkur. Við getum meira að segja átt mjög góðan dag og samt fundið leið til að enda hann á hugsuninni um það sem komst ekki í verk.
En hvað ef það vantar ekki alltaf eitthvað upp á?
Hvað ef æfingin sem þú gerðir var nóg, þó hún hafi ekki verið sú lengsta eða afkastamesta? Hvað ef göngutúrinn var bara nógu góður þó þú hafir ekki náð tíu þúsund skrefum? Hvað ef maturinn sem þú borðaðir var bara fínn þó próteinið hafi ekki náð einhverri ákveðinni tölu? Hvað ef þú þarft ekki að nýta hverja lausa mínútu í að vinna í sjálfri/sjálfum þér?
Þegar athyglin beinist stöðugt að því sem vantar upp á er hætt við að við missum sjónar á því sem gengur vel, því sem við höfum þegar áorkað og því sem er einfaldlega gott eins og það er.
Við getum æft okkur í að sjá það sem við erum nú þegar að gera nógu vel. Að hugsa nægilega vel um okkur. Að hreyfa okkur þegar við getum. Að hvíla okkur þegar við þurfum. Að gera eins vel og við getum með þá orku, tíma og aðstæður sem við höfum þann daginn. Ekki ganga sjálfkrafa út frá því að það vanti alltaf eitthvað upp á. Það má nefnilega líka vera markmið að eiga gott líf án þess að vera stöðugt að reyna að verða betri í því. Við ættum ef til vill að leyfa okkur að vera meira mannleg í stað þess að ætlast til að við séum ofurmannleg. Hugsa meira um það sem við erum nú þegar að gera vel og kunna að meta það að vera alveg ofboðslega miðlungs á fullt af sviðum og samt alveg nóg.
Guðrún Arngrímsdóttir er ÍAK einkaþjálfari, jógakennari og markþjálfi með diplómu í jákvæðri sálfræði ásamt því að vera önnur eigenda Sjálfsræktar heilsumiðstöðvar. Pistlar hennar og Hrafnhildar Reykjalín Vigfúsdóttur birtast annan hvern þriðjudag á akureyri.net.
Takk fyrir mig, Akureyri!
Þröngsýni, sjúkdómur hinna
Ættkvísl hlyntrjáa
Að endurtaka endurtekna þætti