Fara í efni
Pistlar

Af hverju getur verið svona erfitt að slaka á?

HEILSA – 26

Kunningi minn sagði við mig um daginn:

„Veistu, ég kann bara ekki að slaka á.“

Ég held að mörg okkar skilji nákvæmlega hvað hann átti við. Við getum verið dauðþreytt eftir langan dag og langað ekkert meira en að hvíla okkur, en þegar við loksins setjumst niður sest hugurinn ekki endilega niður með okkur. Við förum yfir daginn, hugsum um það sem við eigum eftir að gera, skipuleggjum morgundaginn eða grípum í símann og finnum okkur eitthvað til að hafa fyrir stafni. Það að stoppa er nefnilega ekki alltaf það sama og að slaka á.

Ég hef sjálf mjög virkan huga og hef alltaf haft. Kannski er það einmitt þess vegna sem ég hef lært hversu fáránlega gott það er fyrir mig að slaka á á markvissan hátt, í stað þess að gera ráð fyrir að slökun gerist bara af sjálfu sér þegar ég hef loksins tíma.

En af hverju skiptir það yfirhöfuð máli að kunna að slaka á? Vegna þess að slökun er ekki bara notaleg leið til að enda daginn eða eitthvað sem við gerum þegar við höfum lokið öllu hinu. Líkaminn þarf reglulega að fá tækifæri til að færa sig úr virkni yfir í hvíld og endurheimt. Við getum ekki verið stöðugt að gefa frá okkur orku án þess að skapa líka aðstæður til að endurnærast.

Þegar við náum raunverulega að slaka á getur öndunin orðið hægari, vöðvaspenna minnkað og hjartsláttur róast. Hugurinn fær líka hlé frá stöðugu áreiti og úrvinnslu. Ég fer nánar í það síðar hvað gerist í taugakerfinu við slökun, en í grunninn snýst þetta um jafnvægi. Við þurfum bæði virkni og hvíld, álag og endurheimt.

Ég hef áður skrifað um hraðann í samfélaginu okkar, allt áreitið sem við tökum inn og hversu auðvelt það er að venjast því að vera stöðugt að gera eitthvað. En jafnvel þegar við vitum að við þurfum að hægja á okkur er ekki þar með sagt að það sé auðvelt. Þegar við byrjum að gefa okkur markvisst tíma til að slaka á getur komið upp alls konar viðnám. Hugurinn fer á fullt, okkur verður órótt, okkur leiðist eða við finnum sterka löngun til að kíkja á símann. Jafnvel nokkrar mínútur í kyrrð geta virst ótrúlega langar.

Það er auðvelt að túlka þetta sem merki um að maður sé einfaldlega ekki góður í að slaka á. En ef við erum vön mikilli virkni og stöðugu áreiti er ekkert sérstaklega skrýtið að kyrrðin sé framandi í fyrstu. Hugur og líkami eru kannski einfaldlega ekki vön henni og það getur tekið tíma. Við þurfum ekki að vera góð í að slaka á áður en við byrjum að æfa okkur í því, frekar en nokkru öðru.

Mér dettur í hug orðatiltæki sem gjarnan er kennt við búddisma: „Þú ættir að hugleiða í tuttugu mínútur á dag. Nema þú hafir ekki tíma til þess. Þá ættirðu að hugleiða í klukkutíma.“ Ég myndi ekki taka klukkutímann alveg bókstaflega, en hugsunin á bak við þetta er góð. Þegar okkur finnst við alls ekki hafa tíma til að stoppa getur það verið vísbending um að við þurfum sérstaklega á því að halda. Sama getur átt við um viðnámið sem við finnum stundum þegar við hægjum á okkur.

Fyrir mér hefur orðið gagnlegt að hugsa um slökun sem færni. Ekki eitthvað sem maður annaðhvort kann eða kann ekki, heldur eitthvað sem við getum æft. Æfingin þarf hvorki að vera löng né flókin. Við getum byrjað á nokkrum mínútum, minnkað áreitið, lagt símann frá okkur og leyft athyglinni að hvíla á önduninni eða líkamanum.

Markmiðið er heldur ekki að tæma hugann eða hætta að hugsa. Hugurinn heldur auðvitað áfram að kalla fram hugsanir. Mér finnst stundum gagnlegt að hugsa um hugann eins og kvikmyndatjald þar sem hugsanirnar birtast hver á fætur annarri. Við getum gleymt okkur inni í myndinni og látið hana taka okkur með sér, en við getum líka setið aðeins aftar í salnum og fylgst með því sem birtist.

Í þessu felst ákveðið frelsi. Þó við höfum hugsanir þurfum við ekki alltaf að fylgja þeim eða bregðast við þeim. Við getum tekið eftir því sem hugurinn er að gera og fært athyglina síðan mjúklega aftur að önduninni eða líkamanum. Það er ekki merki um að æfingin hafi mistekist þegar hugurinn reikar. Að taka eftir því að hugurinn reiki er hluti af æfingunni.

Það getur líka verið áhugavert að taka eftir því hvað hjálpar manni sjálfum raunverulega að slaka. Fyrir suma er það kyrrð eða hugleiðsla, fyrir aðra róleg ganga, öndun, tónlist, handavinna, meðvituð hreyfing eða djúpslökun. Fyrir mig hefur markviss djúpslökun, meðal annars í gegnum Jóga Nidra, orðið sérstaklega dýrmætt verkfæri. Virki hugurinn minn þagnar ekki algjörlega, en ég hef lært betur hvernig ég get gefið honum hvíld og það er ómetanlegt.

Slökun þarf ekki að vera enn eitt atriðið sem við eigum að standa okkur vel í og við getum einfaldlega byrjað á því að gefa því sem hjálpar okkur að slaka raunverulega á aðeins meira pláss í lífinu. Við þurfum jafnvægi milli þess að gefa frá okkur orku og fylla aftur á tankinn. Að vita hvað hjálpar okkur að slaka á og endurnærast er því nauðsynlegur hluti þess að lifa vel.

Hrafnhildur Reykjalín er heilsuráðgjafi, PCC vottaður kennari í markþjálfun með diplómu í jákvæðri sálfræði auk fjölbreyttrar menntunar í andlegri og líkamlegri heilsu og önnur eigenda Sjálfsræktar heilsumiðstöðvar. Pistlar hennar og Guðrúnar Arngrímsdóttur birtast annan hvern þriðjudag á akureyri.net.

Eigum við að borga brúsann?

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
03. október 2026 | kl. 06:00

Nánasta fjölskylda birkis

Sigurður Arnarson skrifar
30. september 2026 | kl. 12:30

Hús dagsins: Norðurgata 16

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
29. september 2026 | kl. 20:00

Að hverfa til einfaldleikans

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
26. september 2026 | kl. 06:00

Notkun og mikilvægi hafþyrnis

Sigurður Arnarson skrifar
23. september 2026 | kl. 11:20

Þurfum við alltaf að vera að verða betri?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 06:00