Djúpslökun og töfrar Jóga Nidra
HEILSA – 28
Í síðustu grein skrifaði ég um mikilvægi þess að kunna að slaka á og hvernig við getum þjálfað þá færni. Jóga Nidra er ein þeirra aðferða sem geta hjálpað okkur að finna djúpa hvíld og endurnæringu. Það sem mér finnst þó sérstaklega heillandi er hvernig áhrifin geta náð langt út fyrir hugleiðslustundina sjálfa. Sumir lýsa því að þeir nái ákveðinni núllstillingu, aðrir tala um djúpa hvíld sem þeir eiga erfitt með að finna annars staðar. Með reglulegri iðkun upplifa margir aukna ró, sterkari tengsl við sjálfa sig og meiri hæfni til að takast á við það sem lífið færir þeim.
Jóga Nidra er tegund hugleiðslu sem á rætur í jóga. Nafnið er gjarnan þýtt sem jógískur svefn, en í Jóga Nidra erum við leidd inn í djúpa slökun þar sem athyglin færist smám saman frá umhverfinu og inn á við. Við liggjum yfirleitt þægilega með lokuð augun og fylgjum leiðsögn sem beinir athyglinni meðal annars að líkamanum, önduninni og því sem við upplifum hverju sinni. Engin sérstök reynsla af hugleiðslu er nauðsynleg og við getum einfaldlega leyft okkur að njóta stundarinnar.
Líkaminn okkar er ótrúlega vel gerður. Á hverjum degi sinnir hann ótal verkefnum án þess að við þurfum að hafa nokkra meðvitaða stjórn á þeim. Hann vinnur stöðugt að því að halda jafnvægi, gera við skemmdir, endurnýja frumur og laga sig að því álagi sem við verðum fyrir. Til þess að þessi ferli gangi sem best þurfum við líka að gefa honum tækifæri til að hvílast og endurnærast.
Í Jóga Nidra sköpum við aðstæður þar sem líkaminn fær tækifæri til að draga úr örvun og færa sig í meiri ró. Öndunin getur orðið hægari, vöðvaspenna minnkað og hjartsláttur róast. Þannig gefum við líkamanum tækifæri til að nýta eigin hæfni til að jafna sig og endurheimta jafnvægi.
Á síðustu árum hafa vísindamenn rannsakað Jóga Nidra í auknum mæli og niðurstöðurnar eru áhugaverðar. Rannsóknir benda meðal annars til þess að regluleg iðkun geti dregið úr streitu og kvíðaeinkennum, bætt svefn og haft jákvæð áhrif á starfsemi ósjálfráða taugakerfisins. Í rannsóknum hafa meðal annars mælst breytingar á hjartslætti og blóðþrýstingi sem samræmast slökunarviðbrögðum líkamans. Heilinn virðist einnig bregðast við þessari tegund hugleiðslu. Rannsóknir sýna breytingar á heilabylgjum meðan á Jóga Nidra stendur, meðal annars í tengslum við djúpa slökun og breytta athygli. Það er áhugavert að hugsa til þess að á meðan við liggjum kyrr og virðumst ekki vera að gera neitt er ýmislegt að gerast í líkamanum sem við verðum ekki endilega vör við.
Stundum er sagt að 45 mínútur í Jóga Nidra geti jafnast á við þrjár klukkustundir af djúpri hvíld. Það er ekki hægt að setja nákvæmt jafnaðarmerki þar á milli út frá þeim rannsóknum sem liggja fyrir, en þessi samanburður endurspeglar þá djúpu endurnæringu sem margir upplifa eftir Jóga Nidra.
En svo er það eitthvað annað við Jóga Nidra sem er erfiðara að koma í orð. Einhverjir óútskýranlegir töfrar sem hver og einn getur upplifað innra með sér. Stundum er það tilfinningin að komast í dýpri tengsl við sjálfan sig, stundum óvænt kyrrð eða vellíðan sem erfitt er að lýsa. Þessi upplifun er persónuleg og ekki alltaf hægt að útskýra hana með mælingum eða rannsóknum.
Þegar við gefum okkur reglulega tíma til að beina athyglinni inn á við förum við gjarnan að taka betur eftir eigin líðan, spennu í líkamanum, hugsunum og tilfinningum. Við lærum að þekkja eigin viðbrögð og getum æft okkur í að mæta þeim af meiri velvild og umburðarlyndi. Þessi aukna sjálfsþekking getur fylgt okkur inn í daglegt líf, hjálpað okkur að átta okkur betur á eigin þörfum og gefið okkur meira svigrúm áður en við bregðumst við.
Við getum ekki alltaf stjórnað því sem gerist í kringum okkur, en við getum ræktað með okkur hæfileikann til að finna meiri ró innra með okkur, jafnvel þegar mikið gengur á. Mér finnst fallegt að líkja þessu við augað í storminum, þar sem ríkir kyrrð þótt allt í kringum okkur sé á fleygiferð.
Það er dýrmætt að sjá fólk koma aftur og aftur og skapa sér þetta rými. Fólk mætir með mismunandi dagsform og misjafnar þarfir. Sumir vilja fyrst og fremst hvílast og endurnærast, aðrir njóta þess að eiga reglulega stund til hugleiðslu og sjálfsræktar. Með tímanum getur iðkunin orðið að dýrmætum hluta af því að hlúa að eigin vellíðan. Við gefum líkamanum tækifæri til að hvílast og endurnærast, en um leið ræktum við sambandið við okkur sjálf. Smám saman getur sú ró sem við finnum í hugleiðslunni orðið að einhverju sem við eigum auðveldara með að nálgast þegar við þurfum á henni að halda í daglegu lífi.
Hrafnhildur Reykjalín er heilsuráðgjafi, Jóga Nidra kennari, PCC vottaður kennari í markþjálfun með diplómu í jákvæðri sálfræði auk fjölbreyttrar menntunar í andlegri og líkamlegri heilsu og önnur eigenda Sjálfsræktar heilsumiðstöðvar. Pistlar hennar og Guðrúnar Arngrímsdóttur birtast annan hvern þriðjudag á akureyri.net.
Elrið og þjóðsögurnar
Mannúðarlánastefna og biksvartur húmor
Hús dagsins: Hríseyjargata 6
Hús dagsins: Norðurgata 33