Fara í efni
Umræðan

Vinnuvikan stytt en álag á nemendur aukið

Hvernig stendur á því að menntakerfið fari í öfuga átt við atvinnulífið? Það er merkilegt að sjá hvernig tvær af mikilvægustu stoðum samfélagsins virðast stefna í öfuga átt við hvor aðra þegar kemur að vinnuálagi. Á meðan vinnumarkaðurinn er undir þrýstingi að stytta vinnuvikuna og bregðast við aukinni kulnun, þá virðist menntakerfið auka álag á nemendur. Af hverju er þróunin í sitthvora áttina? Við vinnum stöðugt að bættri vellíðan og jafnvægi á vinnumarkaði á meðan nemendur upplifa aukna streitu og yfirþyrmandi vinnuálag.

Stytting vinnuvikunnar

Á undanförnum árum hefur vinnuálag í atvinnulífinu verið mikið til umræðu og hafa fjölmörg lönd gripið til aðgerða til að bæta lífsgæði fólks og jafnt aðgerða til þess að vernda starfsfólk frá kulnun og streitu. Stytting vinnuvikunnar hefur haft jákvæð áhrif víðs vegar um heiminn þar sem framleiðni, starfsánægja og vellíðan starfsfólks hefur aukist á sama tíma og annar hluti samfélagsins færist í öfuga átt, menntakerfið.

Aukið álag á nemendur

Fyrir þó nokkrum árum var ákveðið að stytta framhaldsskólana á Íslandi úr fjórum árum í þrjú. Þessi stytting var hugsuð til þess að flýta námi og hleypa nemendum fyrr inn á vinnumarkaðinn eða í framhaldsnám. Hins vegar hefur þessi breyting í för með sér gríðarlegt álag á nemendur. 

Til þess að ljúka náminu innan þriggja ára tímaáætlunar þurfa nemendur að taka meira en 30 einingar á önn, sem áður var talið að samsvaraði 40 klst. vinnuviku. Þessi stytting hefur skapað áskoranir, þar sem nemendur upplifa aukið álag, lengri skóladaga og minni tíma fyrir hvíld milli verkefna. Það er augljóslega erfitt að halda í við þessa kröfu og þá sérstaklega fyrir unglinga sem eru að taka sín fyrstu skref sem sjálfstæðir einstaklingar á mikilvægum mótunarárum. Þegar nemendur framhaldsskóla færa sig svo upp í háskólanám eykst álagið jafnvel enn meira, skólar og námsgreinar eru auðvitað mismunandi, en ef við tökum sem dæmi:

Þá er gert ráð fyrir að lágmarki 62 klst. og miðað við 70 klst. á viku fari í námstengda vinnu í kennsluskrá meistaranámsins sem ég stunda miðað við 30 eininga eðlilega önn. Þetta er langt umfram það sem við myndum kalla heilbrigt vinnuálag á vinnumarkaði og langt umfram það sem vinnandi fólk er reiðubúið að leggja á sig.

Af hverju erum við að gera ólíkar kröfur til þessa tveggja hópa samfélagsins? Á meðan atvinnulífið veitir meira svigrúm til að koma jafnvægi á vinnu og frítíma fólks með styttingu vinnuvikunnar, fá nemendur sífellt meira vinnuálag. Það er næstum því eins og ákveðið hafi verið að nemendur þurfi að finna fyrir kulnun í námi til þess að undirbúa sig fyrir raunveruleika atvinnulífsins, þó svo að vinnumarkaðurinn vinni hart til þess að færast frá streituvaldandi umhverfi.

Það er ljóst að streita og kulnun eru graf alvarleg mál, bæði í atvinnulífinu og í námi. Því er mikilvægt að við tökum samræmdar ákvarðanir sem styðja við vellíðan alls samfélagsins, hvort sem það eru nemendur eða starfsfólk. Með því að taka tillit til þess álags sem nemendur búa við og stuðla að heilbrigðara námsumhverfi, leggjum við grundvöll fyrir því að nemendur fari betur undirbúnir út á vinnumarkað með aukna orku og vellíðan í farteskinu.

Karl Liljendal Hólmgeirsson skipar 7. sæti á lista Miðflokksins í Norðausturkjördæmi við alþingiskosningarnar 30. nóvember

Fámennt ríki á jaðrinum

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
10. nóvember 2024 | kl. 16:00

Varðandi virðingu

Hlín Bolladóttir skrifar
09. nóvember 2024 | kl. 19:00

Frelsi til að búa þar sem þú vilt

Sæunn Gísladóttir skrifar
09. nóvember 2024 | kl. 12:00

Besta kjarabótin er lækkun vaxta

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar
08. nóvember 2024 | kl. 19:45

Allt mannanna verk – orkuöryggi á Íslandi

Ingibjörg Isaksen skrifar
08. nóvember 2024 | kl. 19:30

Eflum Háskólann á Akureyri

Sigurjón Þórðarson skrifar
08. nóvember 2024 | kl. 11:00