Norðausturkjördæmi gæti misst þrjú sæti
Þingmönnum Norðausturkjördæmis myndi fækka úr tíu í sjö, samkvæmt tillögum um breytingar á kosningalögum sem miða að því að jafna vægi atkvæða, og Norðvesturkjördæmi myndi missa einn þingmann. Á móti myndi þingmönnum Suðvesturkjördæmis fjölga úr 14 í 18. Heildarfjöldi þingmanna Alþingis yrði áfram 63. Þetta kemur fram í frétt á vef Stjórnarráðsins.
Það er starfshópur sem Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra skipaði til að endurskoða kosningalögin sem leggur þessar breytingar til. Samkvæmt tillögunum myndi hlutfall kjördæma- og jöfnunarsæta á Alþingi jafnframt gjörbreytast. Í stað þess að 54 þingmenn séu kjörnir í kjördæmum og níu séu jöfnunarþingmenn yrðu aðeins 36 kjördæmakjörnir þingmenn en 27 jöfnunarþingmenn.

10 þingmenn Norðausturkjördæmis eftir síðustu kosningar til Alþingis 30. nóvember 2024. 1. Logi Einarsson (S), 2. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M), 3. Jens Garðar Helgason (D), 4. Sigurjón Þórðarson (F), 5. Ingibjörg Ólöf Isaksen (B), 6. Eydís Ásbjörnsdóttir (S), 7. Ingvar Þóroddsson (C), 8. Þorgrímur Sigmundsson (B), 9. Njáll Trausti Friðbertsson (D), 10. Þórarinn Ingi Pétursson (B), landskjörinn.
Hvert kjördæmi fengi sex kjördæmakjörna þingmenn en jöfnunarsætunum yrði síðan dreift milli kjördæmanna. Samkvæmt stjórnarskrá þurfa kjördæmakjörnir þingmenn að vera að lágmarki sex í hverju kjördæmi og tillögur starfshópsins ganga út á að ekki þurfi að breyta stjórnarskrá. Með því að fjölga jöfnunarsætum en fækka kjördæmasætum á móti er mögulegt að tryggja betur að heildarfjöldi þingmanna hvers framboðs endurspegli atkvæðafjölda þess.
Markmiðið að draga úr mun á fjölda kjósenda að baki þingsæti
Markmiðið með tillögum starfshópsins er að draga úr þeim mun sem nú er á fjölda kjósenda að baki hverju þingsæti. Munurinn er sérstaklega mikill í Norðvestur- og Norðausturkjördæmi, þar sem færri kjósendur standa að baki hverju þingsæti en í fjölmennari kjördæmum.
- Í Norðausturkjördæmi eru nú 31.038 kjósendur á bak við tíu þingsæti, eða um 3.104 kjósendur á hvert sæti. Landsmeðaltalið er 4.262 kjósendur á þingmann. Með sjö þingsætum yrðu um 3.880 kjósendur að baki hverju sæti í kjördæminu og munurinn við landsmeðaltalið því mun minni. Samkvæmt tillögunni yrðu sex þingmenn kjörnir í kjördæminu en eitt jöfnunarsæti kæmi þar til viðbótar.
- Í Norðvesturkjördæmi er hins vegar ekki gert ráð fyrir neinum jöfnunarþingmanni og þingmönnum þar myndi því fækka úr 7 í 6.
- Þessir fjórir þingmenn sem Vestur-, Norður- og Austurland myndu missa færu allir til Suðvesturkjördæmis. Þingmönnum þess kjördæmis myndi því fjölga úr 14 í 18.
- Í Suðurkjördæmis yrðu áfram 10 þingmenn
- Sömuleiðis yrðu áfram 11 þingmenn í hvoru Reykjavíkurkjördæmanna

Starfshópur um aukið jafnræði þegar hann var skipaður. Frá vinstri: Ólafur Þór Harðarson, Sigrún Helga Lund og Þorkell Helgason. Mynd af vef Stjórnarráðsins.
Dómsmálaráðherra hefur sent forseta Alþingis bréf með skýrslu starfshópsins, ásamt drögum að lagafrumvarpi. Í bréfinu leggur ráðherra til að stofnuð verði þingmannanefnd til að fjalla um tillögur starfshópsins, því mikilvægt sé að allir þingflokkar komi að breytingu af þessu tagi á kosningalögum.
Skýrsla starfshóps dómsmálaráðherra um breytingar á kosningalögum
Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls
Það dugir skammt að breyta bókstöfum í tölustafi
Píeta – mikilvægt úrræði í sjálfsvígsforvörnum
Námaskarð, öryggismál