Fara í efni
Umræðan

Þúsundir hafa gengið þennan stiga í 100 ár

Mynd: Kristján Pétur Guðnason

GAMLI SKÓLI – 18

  • Í þessum mánuði eru 120 ár síðan hið gamla, glæsilega skólahús Menntaskólans á Akureyri var tekið í notkun. Akureyri.net birtir af því tilefni einn kafla á dag út mánuðinn úr bókinni Lifandi húsið - saga gamla skólahúss Menntaskólans á Akureyri.

Þúsundir nemenda hafa gengið þennan stiga í 100 ár og bera slitin tröppunefin þess vitni. Stigahandrið er skorið á einfaldan hátt og hvílir á ferstrendum trérimum sem felldir eru í stigakjálkann, einföld og sígild smíð. Stiginn er brattur, uppstig lágt og framstig stutt. Um 1970 var rætt um að breyta stigum hússins, leggja þá meira og auka þeim rými með því að opna að austurvegg. Ekkert varð úr þessu enda hefði þá eitt af einkennum hússins horfið.

Niður stigann koma Sigmundur Ernir Rúnarsson, Kristín Linda Jónsdóttir og Sveinn Eldon kennari, og seinust Katrín Guðmundsdóttir og Hjörleifur Rafn Jónsson.

  • Suðurstigi er kafli úr bókinni Lifandi húsið - saga gamla skólahúss Menntaskólans á Akureyri sem Völuspá gaf út árið 2013. Höfundur bókarinnar er Tryggvi Gíslason, skólameistari frá 1972 til 2003.

Sagan, umhverfið og sundlaugin á Kristnesi ómetanleg lífsgæði!

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Játningar nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Erum við ráðalaus gegn einmanaleika?

Sóley Björk Stefánsdóttir skrifar
29. október 2026 | kl. 15:15

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15