Fara í efni
Umræðan

Um 500 nýnemar innritaðir í VMA og MA

Innritun í framhaldsskóla landsins fyrir komandi skólaár er nú lokið. Í Verkmenntaskólann á Akureyri (VMA) innrituðust 270 nýnemar og 226 í Menntaskólann á Akureyri (MA). Kennsla hefst í VMA þann 18. ágúst og daginn eftir verður skólasetning í MA.

Í frétt á vefsíðu VMA kemur fram að auk nýnemanna 270 hafi 94 eldri nemendur innritast í skólann. Þar segir ennfremur að dagskrá fyrir nýnema verði þann 17. ágúst í skólanum og foreldrum og forráðamönnum er velkomið að koma með nemendum. Kennsla hefst síðan samkvæmt stundaskrá þann 18. ágúst.

Á vefsíðu MA er greint frá því að aðsókn í skólann í haust sé mjög góð og alls hafi 249 nýnemar á fyrsta ári sótt um skólavist með MA sem fyrsta kost. Teknir voru inn 226 nýnemar og mun nemendafjöldi í skólanum verða svipaður á næsta skólaári og því síðasta. Einnig kemur fram í fréttinni að bekkirnir séu mjög fjölmennir og ekki hægt að bæta við nemendum að sinni en hægt er að skrá sig á biðlista. Skólinn verður settur að morgni 19. ágúst.

Hvorki sviðslistabraut né mála- og menningarbraut

Í fréttinni er einnig sagt frá því að hvorki hafi verið hægt að innrita á kjörnámsbraut í sviðslistum né mála- og menningarbraut. Of fáar umsóknir hafi borist til að hægt væri að fara af stað með þær brautir vegna kröfu um aðhald í rekstri. Karl Frímannsson, skólameistari MA, gagnrýndi menntamálayfirvöld harkalega í skólaslitaræðu sinni þann 17. júní sl. fyrir aðgerðaleysi og úrræðaleysi og að ætlunin sé að skera fjárframlög til framhaldsskólastigsins niður um 4 milljarða króna á ári.

  • Frétt akureyri.net um gagnrýni Karls Frímannssonar: 

Gagnrýndi yfirvöld menntamála harðlega

„Þúsund þorskar á færibandinu ...

Óli Rúnar Ástþórsson skrifar
13. ágúst 2026 | kl. 17:00

Yrði Evrópusambandið bjargvættur eða bölvaldur landsbyggðanna?

Þóroddur Bjarnason skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00

Stærð þjóðar

Pétur Björgvin Þorsteinsson skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00

Freistað með okkar eigin peningum

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
07. ágúst 2026 | kl. 15:00

Hvað gæti ESB gert fyrir Norðurland?

Halldór Jörgen Olesen skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 15:00

Ísland og ESB: Horft af brúnni

Þorvaldur Gylfason skrifar
04. ágúst 2026 | kl. 12:30