Fara í efni
Umræðan

„Sagðar of vitlausar eða jafnvel geðveikar“

Forystufólk Flokks fólksins á Akureyri. Frá vinstri: Tinna Guðmundsdóttir, Jón Hjaltason, Brynjólfur Ingvarsson, Málfríður Þórðardóttir og Hannesína Scheving.

Þrjár konur í forystu Flokks fólks á Akureyri segjast sífellt hafa verið lítilsvirtar og hunsaðar af körlum í flokknum. Á trúnaðarfundum flokksins hafi þær verið sagðar of vitlausar eða jafnvel geðveikar til að vera marktækar.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Málfríður Þórðardóttir, Tinna Guðmundsdóttir og Hannesína Scheving Virgild Chester sendu frá sér í morgun. „Sumar okkar máttu sæta kynferðislegu áreiti og virkilega óviðeigandi framkomu til viðbótar við að vera ekki starfinu vaxnar og geðveikar,“ segir þar meðal annars.

Varaformaður flokksins, Guðmundur Ingi Kristinsson, vakti fyrst athygli á málinu á Facebook í morgun og fljótlega eftir það birtu konurnar þrjár yfirlýsingu.

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins kveðst miður sín og segir aðalstjórn flokksins koma saman í kvöld þar sem málið verði tekið fyrir.

Í ítarlegri umfjöllun á Vísi kemur m.a. eftirfarandi fram:

  • Brynjólfur Ingvarsson, efsti maður á lista flokksins og eini bæjarfulltrúi, var enn að ná áttum þegar blaðamaður náði af honum tali í morgun.
  • Jón Hjaltason, þriðji maður á lista, segir í samtali við fréttastofu að vissulega hafi verið ágreiningur. „En einelti ekki. Kynferðislegt ofbeldi, það er fráleitt. Þetta eru mjög alvarlegar ásakanir,“ segir Jón.
  • Ekki kemur fram berum orðum í yfirlýsingu þriggja efstu kvenna á listanum hverjir meintir gerendur séu. „Þetta er óljóst. Þær segja forystumenn. Það er ekki mörgum körlum til að dreifa,“ segir Jón. Þeir Brynjólfur eru einu karlarnir af efstu níu á lista flokksins.
  • Jón er á leiðinni suður í öðrum erindagjörðum en vonast til að ná tali af formanni og varaformanni flokksins í kvöld. Hann vilji fá á hreint í hverju meint ofbeldi eigi að vera fólgið, ekki síst hið kynferðislega.
  • „Þetta er undarleg aðferð hjá þingmanni og varaformanni. Talar ekki við neinn sem hlut á að máli. Talar bara við konurnar en ekkert okkur, þessa vondu menn sem púum og eineltum,“ segir Jón.
  • Hjörleifur Hallgríms skipar 22. sæti á lista Flokks fólksins sem bauð fram á Akureyri í vor. „Ég er guðfaðir listans í bæjarstjórninni, setti þennan lista saman á hálfum mánuði,“ segir hann.
  • Hann sagðist lítið vera farinn að frétta af því sem væri í gangi. Ástæða væri fyrir því. Þær Málfríður Þórðardóttir og Tinna Guðmundsdóttir, sem sendu frá sér yfirlýsinguna í morgun, væru ósáttar við hann.

Hjörleifur var útilokaður til að halda sátt

  • „Þær tilkynntu að ef ég yrði boðaður á fund þá myndu þær ekki mæta,“ segir Hjörleifur.
  • Jón segir að Hjörleifur hafi vissulega sett listann saman fyrir kosningarnar í vor. Það verði ekki tekið af honum. Hann hafi svo komist upp á kant við konurnar í kosningabaráttunni.
  • „Til þess að lægja öldur og halda sátt þá var hann útilokaður,“ segir Jón. Hjörleifur hafi því ekki mætt á fundi síðan í maí ef frá sé talinn einn fundur sem Inga Sæland, formaður flokksins, mætti á fyrir norðan.
  • Hjörleifur segir að Tinna hafi bolað honum úr stjórninni með hávaðalátum, svívirðingum og skítkasti.
  • Aðspurður um útspil formannsins Ingu Sæland að hún sé harmi slegin vegna ásakananna og ætli að taka fast á málum, og boða til fundar aðalstjórnar strax í kvöld, segir Hjörleifur:
  • Inga Sæland er eins og hún er. Hún lofar mann og prísar í bak og fyrir fyrir mína vinnu. Svo hundskammar hún mig hins vegar. Svo ég þekki hennar framkomu. Meira að segja Inga hefur ekki haft samband, Jakob Frímann ekki heldur - þingmaður flokksins fyrir norðan.“

Umfjöllun Vísis má sjá hér og hér.

Yfirlýsing Málfríðar, Tinnu og Hannesínu í heild:

„Í kjölfar yfirlýsinga varaformanns Flokks fólksins í morgun höfum við sem erum þolendur alls þessa ofbeldis sem um er rætt, ákveðið að stíga fram og freista þess að útskýra líðan okkar og ömurlega reynslu af samskiptum við þessa ónefndu karlaforystu og aðstoðarmanna þeirra á frá því snemma í vor.

Eftir síðustu bæjarstjórnakosningar þar sem flokkurinn okkar vann stórsigur var mikill hugur í okkur öllum, jákvæðni og þakklæti til allra þeirra sem gáfu okkur sitt dýrmæta atkvæði og um leið tækifæri til að koma kærleiksríkum góðum málstað Flokks fólksins á framfæri. Við ætluðum að vinna af krafti við að byggja upp félagstarf flokksins okkar hér heima. Einnig ætluðum við að hafa samráð varðandi öll bæjarráðsmál með því að styðja og styrkja hvert annað. En í ljósi reynslunnar af samskiptum við karlkynsforystu flokksins og aðstoðarmanna hefur þessi góði vilji okkar frekar litast af draumsýn en veruleika.

Efstu konur á lista flokksins voru sífellt lítilsvirtar og hunsaðar. Á trúnaðarfundum flokksins vorum við sagðar of vitlausar eða jafnvel geðveikar til að vera marktækar. Sumar okkar máttu sæta kynferðislegu áreiti og virkilega óviðeigandi framkomu til viðbótar við að vera ekki starfinu vaxnar og geðveikar. Þann 10. sept. sl. boðaði oddviti flokksins til fundar á heimili sínu þar sem við töldum að ætti að freista þess að koma á ró og vinnufriði á meðal okkar. Á fundinum mætti okkur mikil andúð og kuldi og yfirgaf varabæjarfulltrúi hann grátandi eftir tíu mínútur. Oddvitinn dró þá fram bréf sem hann las upp og hótaði að birta. Bréf sem var hlaðið rógburði rangfærlsum og hótunum um að við misstum starfsleyfi okkar sem heilbrigðisstarfsmenn ef við létum ekki að stjórn. Alla daga síðan hafa þessar hótanir verið viðvarandi og umræddu hótunarbréfi dreift.

Eitt er víst að Þetta „samstarf“ hefur verið einstaklega taugatrekkjandi og valdið okkur öllum ómældri vanlíðan og kvíða.

Að lokum viljum við segja þetta:

Það er okkur sárara en tárum taki að þurfa að stíga fram og ræða opinberlega um þá erfiðleika og þau innanflokksátök sem við höfum verið að ganga í gegnum. Ástæðan að sjálfsögðu sú að við viljum ekki á neinum tímapunkti skaða flokkinn og allt það góða fólk innan Flokk fólksins sem er með hjartað á réttum stað. En nú þegar varaformaðurinn okkar hefur stígið fram og ætlar augljóslega að taka málið föstum tökum, finnst okkur ekkert annað koma til greina en að segja okkar sögu.

Virðingarfyllst,

Málfríður Þórðardóttir
Tinna Guðmundsdóttir
Hannesína Scheving Virgild Chester“

Áhugalausir þingmenn

Björn Valur Gíslason skrifar
25. mars 2024 | kl. 12:30

Akureyri – næsta borg Íslands

Ingibjörg Isaksen skrifar
20. mars 2024 | kl. 14:00

Fimm ástæður til að fagna

Guðmundur Haukur Sigurðarson skrifar
19. mars 2024 | kl. 10:00

Mótmæli sjálfstæðismanna

Björn Valur Gíslason skrifar
15. mars 2024 | kl. 10:15

Frábærar viðtökur bæjarstjóra!

Hjörleifur Hallgríms skrifar
15. mars 2024 | kl. 09:30

Tjaldsvæðið – Villigötur

Jón Hjaltason skrifar
14. mars 2024 | kl. 10:45