Fara í efni
Umræðan

Hjörleifur rekinn úr Flokki fólksins

Stjórn Flokks fólksins hefur ákveðið að reka Hjörleif Hallgríms úr flokknum; svipta hann félagsaðild eins og það er orðað í tilkynningu frá stjórninni á tólfta tímanum í kvöld. Hjörleifur, sem hefur kallað sig guðföður lista flokksins í bæjarstjórnarkosningunum í vor, var í 22. sætinu.

Fróðlegt verður að sjá viðbrögð Hjörleifs. Hann hefur nefnilega haldið því fram að hann hafi aldrei verið í flokknum; kveðst hafa safnað saman öllu fólkinu sem var á listanum, eigi í raun listann þótt hann hafi verið boðinn fram í nafni Flokks fólksins.

Stjórn Flokks fólksins metur það svo að Hjörleifur hafi „með ósæmilegri framkomu í garð varabæjarfulltrúa flokksins stuðlað að deilum innan flokksins og unnið þannig gegn hagsmunum hans.“ Þá hafi ummæli hans í fjölmiðlum undanfarið unnið gegn meginmarkmiðum og hagsmunum Flokks fólksins. „Að kalla varabæjarfulltrúa og flokkssystur sínar „svikakvensur“, ítrekað í fjölmiðlum, segja þær ekki heilbrigðar og önnur ósæmileg ummæli eru að mati stjórnar Flokks fólksins til þess fallin að valda vanlíðan, særa og ærumeiða viðkomandi. Einnig beinast ásakanir tveggja varabæjarfulltrúanna um kynferðislegt áreiti einungis gegn honum.“

Brynjólfur og Jón segja sig úr flokknum

Í tilkynningunni segir stjórnin að Brynjólfur Ingvarsson, bæjarfulltrúi flokksins á Akureyri, og Jón Hjaltason, varabæjarfulltrúi, sem skipaði 3. sæti listans, hafi báðir tilkynnt úrsögn úr flokknum og óskar stjórnin þess eindregið að báðir stígi til hliðar „svo fulltrúar flokksins geti sinnt skyldum sínum gagnvart kjósendum og gætt hagsmuna þeirra.“

Brynjólfur og Jón hafa gefið í skyn að þeir hyggist starfa áfram sem óháðir fulltrúar.

Fréttatilkynning stjórnar Flokks fólksins í heild er svohljóðandi:

Stjórn Flokks fólksins barst fyrir nokkru meðfylgjandi yfirlýsing frá þremur varabæjarfulltrúum flokksins á Akureyri sem skipuðu 2., 4. og 5. sæti á lista Flokks fólksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar þann 14. maí sl.

Í yfirlýsingunni kvennanna segir m.a. eftirfarandi: „Efstu konur á lista flokksins voru sífellt lítilsvirtar og hunsaðar. Á trúnaðarfundum flokksins vorum við sagðar of vitlausar eða jafnvel geðveikar til að vera marktækar. Sumar okkar máttu sæta kynferðislegu áreiti og virkilega óviðeigandi framkomu til viðbótar við að vera ekki starfinu vaxnar og geðveikar.“

Á blaðamannafundi 19. september sl. greindu varabæjarfulltrúarnir frá því að þær hafi mátt sæta hótunum, kallaðar öllum illum nöfnum eins og eineltisseggir, mannorðsmorðingjar, illræmdir lygarar svo eitthvað sé nefnt. Þær hafa einnig sagt að samstarfið hafi valdið þeim andvökum, kvíða og gríðarlegri vanlíðan. Þær hafi ekki séð nein önnur ráð en að óska eftir hjálp frá forystu flokks fólksins.

Yfirlýsing varabæjarfulltrúanna beinist að oddvita og varabæjarfulltrúum sem skipa 3. og 22. sæti á lista Flokks fólksins á Akureyri. Samkvæmt heimildum stjórnar beinast ásakanir um kynferðislegt áreiti ekki að oddvita og varabæjarfulltrúa þeim sem skipar 3. sæti á lista Flokks fólksins á Akureyri.

Stjórn Flokks fólksins hefur fundað ítrekað um málið og kynnt sér fyrirliggjandi gögn sem það varðar. Málið þykir upplýst af hálfu stjórnar.

Oddviti framboðs Flokks fólksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á Akureyri þann 14. maí sl. hefur þegar tilkynnt úrsögn sína úr Flokki fólksins til stjórnar flokksins. Úrsögn hans hefur verið samþykkt og oddvitanum sent eftirfarandi af formanni Flokks fólksins fyrir hönd stjórnar;

„Úrsögn yðar hefur verið móttekin og samþykkt.

Í ljósi þess að þér sitjið sem kjörinn fulltrúi Akureyrarbæjar í krafti lýðræðislegs umboðs Flokks fólksins er það eindregin ósk stjórnar flokksins að þér virðið kjósendur flokksins og sýnið þeim þann heiðarleika að stíga til hliðar svo fulltrúar flokksins geti sinnt skyldum sínum gagnvart kjósendum og gætt hagsmuna þeirra.

Ástæða þykir að benda yður á að það hefur verið upplýst opinberlega að þér eruð ekkiásakaðir um kynferðislegt áreiti.“

Varabæjarfulltrúi sá er skipaði 3. sæti, á lista Flokks fólksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á Akureyri þann 14. maí sl. hefur þegar tilkynnt úrsögn sína úr Flokki fólksins til stjórnar flokksins.

Úrsögn hans hefur verið samþykkt og varabæjarfulltrúanum sent eftirfarandi af formanni Flokks fólksins fyrir hönd stjórnar;

„Úrsögn yðar hefur verið móttekin og samþykkt.

Í ljósi þess að þér sitjið í nefndum á vegum Akureyrarbæjar í krafti lýðræðislegs umboðs Flokks fólksins er það eindregin ósk stjórnar flokksins að þér víkið sæti úr þessum nefndum svo fulltrúar Flokks fólksins geti sinnt skyldum sínum gagnvart kjósendum og gætt hagsmuna þeirra.

Ástæða þykir að benda yður á að það hefur verið upplýst opinberlega að þér eruð ekki ásakaðir um kynferðislegt áreiti“

Varðandi varabæjarfulltrúa þann er skipaði 22. sæti á lista Flokks fólksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á Akureyri þann 14. maí sl.

Stjórn Flokks fólksins metur það svo að hann hafi með ósæmilegri framkomu sinni í garð varabæjarfulltrúa flokksins stuðlað að deilum innan flokksins og unnið þannig gegn hagsmunum hans. Þá hafa ummæli hans í fjölmiðlum undanfarið unnið gegn meginmarkmiðum og hagsmunum Flokks fólksins. Að kalla varabæjarfulltrúa og flokkssystur sínar „svikakvensur“, ítrekað í fjölmiðlum, segja þær ekki heilbrigðar og önnur ósæmileg ummæli eru að mati stjórnar Flokks fólksins til þess fallin að valda vanlíðan, særa og ærumeiða viðkomandi. Einnig beinast ásakanir tveggja varabæjarfulltrúanna um kynferðislegt áreiti einungis gegn honum.

Af þessu sökum hefur stjórn Flokks fólksins ákveðið að svipta umræddan varabæjarfulltrúa félagsaðild að Flokki fólksins, með vísan til greinar 2.6 í samþykktum flokksins. Þar segir að sé félagsmaður staðinn að því að vinna gegn meginmarkmiðum og hagsmunum Flokks fólksins, skuli hann sviptur félagsaðild og skuli það gert á stjórnarfundi með auknum meirihluta atkvæða og félagsmanni tilkynnt það formlega.

Flokkur fólksins leggur mikla áherslu á að í öllum samskiptum komi flokksmenn fram við hvert annað af virðingu, hlýhug og tillitssemi í samræmi við þann grunn sem flokkurinn byggir á. Áreiti, einelti, niðrandi tal eða önnur ósæmileg hegðun er ekki undir nokkrum kringumstæðum liðin í samskiptum flokksmanna. Slík framkoma vinnur gegn hagsmunum flokksins.

Að mati stjórnar Flokks fólksins er máli þessu nú lokið af hálfu flokksins. Við vonum að flokksmenn sýni hverjir öðrum ávallt virðingu, hlýhug og tillitssemi svo allir fái notið sín.

Fólkið fyrst og svo allt hitt.

Reykjavík, 29. september 2022

Stjórn Flokks fólksins,

Inga Sæland
Guðmundur Ingi Kristinsson
Sigurjón Arnórsson
Kolbrún Baldursdóttir
Birgir Jóhann Birgisson
Jónína Björk Óskarsdóttir
Rúnar Sigurjónsson
Sigurður Steingrímsson
Sigurjón Arnórsson
Svanberg Hreinsson

Áhugalausir þingmenn

Björn Valur Gíslason skrifar
25. mars 2024 | kl. 12:30

Akureyri – næsta borg Íslands

Ingibjörg Isaksen skrifar
20. mars 2024 | kl. 14:00

Fimm ástæður til að fagna

Guðmundur Haukur Sigurðarson skrifar
19. mars 2024 | kl. 10:00

Mótmæli sjálfstæðismanna

Björn Valur Gíslason skrifar
15. mars 2024 | kl. 10:15

Frábærar viðtökur bæjarstjóra!

Hjörleifur Hallgríms skrifar
15. mars 2024 | kl. 09:30

Tjaldsvæðið – Villigötur

Jón Hjaltason skrifar
14. mars 2024 | kl. 10:45