Fara í efni
Umræðan

Lítil gerlamengun í sjónum við Akureyri

Gerlasýni eru tekin á sextán stöðum a.m.k. fjórum sinnum á ári til að fylgjast með hreinleika sjávar við strandlengjuna. Mynd af vefsíðu Norðurorku.

Síðustu tvær sýnatökur í sjó meðfram strandlengju Akureyrar sýna að umbætur í fráveitu bæjarins hafa skilað árangri, en auk þess spila áhrif af auknu sólarljósi hlutverk í hraðara niðurbroti gerla. Þetta sést vel á nýju og uppfærðu korti á vef Norðurorku, sem er nú gagnvirkt og hægt að skoða með ítarlegri hætti en áður.

Í frétt á vefsíðu Norðurorku kemur fram að Norðurorka og Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra hafi sinnt eftirliti með fráveitu meðfram strandlengju Akureyrar frá árinu 2005, þar sem reglulega eru tekin gerlasýni til að fylgjast með hreinleika sjávar. Sýni eru tekin á sextán stöðum, a.m.k. fjórum sinnum á ári, af starfsfólki Norðurorku og/eða Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra.

Niðurstöður úr síðustu sýnatökum úr sjó benda til að umbætur í fráveitu bæjarins hafi skilað árangri.

Í fréttinni er sagt frá því að í reglugerð um fráveitur segi að þar sem útivistarsvæði eru við fjörur eða matvælaiðnaður í grennd skuli fjöldi saurkólígerla vera undir 100 í 100 mL sjó (grænn litur á kortinu) utan þynningarsvæðis. Í reglugerð um baðstaði í náttúrunni segir hins vegar að baðvatn á baðstöðum í náttúrunni teljist 1. flokks ef fjöldi saurkólígerla er 250 í 100 mL og 2. flokks ef fjöldi saurkólígerla er 500 í 100 mL sjó (blár litur á korti). Miðað við þessa reglugerð er sem dæmi talið réttlætanlegt að synda sjósund ef saurkólígerlafjöldi er innan 500 gerla/100 ml.

Stöðugt er unnið að því að bæta fráveitu Akureyrarbæjar og stór liður í því var opnun hreinsistöðvar árið 2020. Eftir sem áður þarf að fylgjast með strandlengjunni og finna með því punkta í fráveitukerfinu þar sem gera þarf úrbætur. Til dæmis hafa verið gerðar breytingar á fráveitu við Glerá, þar sem folk á húsbílum gat tæmt ferðaklósett en sá úrgangur skilaði sér ekki rétt í fráveitukerfið. Einnig þurfti að bæta eldri tengingar í Lækjargili en mælingar í kringum félagssvæði Nökkva sýndu reglulega aukið magn gerla.

Sýnatakan er því áfram mikilvægur þáttur í fráveitu Norðurorku og uppfært kort gerir gögnin nú aðgengileg öllum sem hafa áhuga á að skoða þau. Á kortinu á heimasíðu Norðurorku geta íbúar nú séð niðurstöður úr sýnatökunum og þá metið sjálfir hvort þeir telji réttlætanlegt að stunda sjósund við strendur bæjarins. Á síðunni er hægt er að skoða niðurstöður mælinganna allt frá árinu 2016.

Aukið frelsi og sanngjarnt verð

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. júní 2026 | kl. 08:00

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Ingólfur Jóhannsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00