46 tonn af rusli hreinsuð úr fráveitu
Á síðasta ári voru 46 tonn af rusli hreinsuð úr fráveitu á Akureyri að því er segir í tilkynningu frá Norðurorku. Þar segir einnig: „Í klósettið á ekkert að fara nema piss, kúkur og klósettpappír.“
Fyrir nokkrum misserum birti Norðurorka sniðugar auglýsingar um óleyfilegt niðurhal, þar sem sagði: Klósettið er ekki ruslafata. Þá var rúmlega eitt ár síðan hreinsistöð fráveitu var tekin í notkun í Sandgerðisbót og á þeim tíma höfðu 19,7 tonn af óæskilegum úrgangi verið síuð frá fráveituvatninu; 19,7 tonn af rusli sem annars hefðu borist út í Eyjafjörðinn.
Einhver kann að halda að óþarft sé að benda á það en svo er sannarlega ekki, sagði þá í frétt akureyri.net og miðað við nýja tilkynningu er ekki vanþörf á því bæjarbúar hafa aldeilis gefið í; „óleyfilegt niðurhal“ hefur meira en tvöfaldast!
Fráveituvatn er m.a. skólp, vatn frá upphitunarkerfum húsa og regn sem lendir í fráveitukerfum. Í stöðinni í Sandgerðisbót er allt slíkt fráveituvatn í bænum hreinsað áður en því er veitt út í fjörðinn.
Blautþurrkur og klútar eiga að fara í ruslið
„Hreinsistöð fráveitu var tekin í notkun árið 2020 en þar eru allir fastir hlutir sem er eru stærri en 3 millimetrar hreinsaðir úr fráveituvatninu. Þessu fasta efni er síðan pakkað og það urðað,“ segir í tilkynningu sem Norðurorka birti í gær. „Í fráveitukerfinu eru lagnir, dælustöðvar og fjöldi dæla sem koma fráveituvatninu alla leið í hreinsistöðina. Eftir því sem fasta efnið er fyrirferðarmeira í fráveitunni, verður erfiðara í dæla því áfram og hreinsa það frá. Efnið festist í lögnum og dælum, sem kallar á kostnaðarsamar viðgerðir og viðhald.“
„Fitukekkir hlaða sífellt meiru utan á sig eftir því sem þeir ferðast um kerfið en allra erfiðast er að eiga við blautþurrkur og klúta, sem eiga alls ekki að fara í klósettið heldur beint í ruslið. Blautþurrkur eru ekki hannaðar til þess að brotna auðveldlega niður, en á sumum umbúðum kemur þó fram að þær séu „flushable.“ Slíkt þýðir í raun að það sé hægt að sturta þeim niður, en ekki að þær megi fara í fráveitukerfið. Með öðrum orðum – það er vissulega hægt að setja þær í klósettið og þær skila sér út úr húsinu, en þessi merking segir ekkert til um að þær eigi að fara í fráveituna.
Blautþurrkur safna á sig fitu og öðrum úrgangi í fráveitukerfinu, stífla dælur og valda almennt miklu tjóni. Í fráveitu sem ekki er hreinsuð á leið til sjávar, líkt og gert var áður en hreinsistöðin var tekin í notkun, fara þessar blautþurrkur út í lífríkið líkt og annað plastrusl og brotna mjög lítið niður á mjög löngu tímabili.“
- Á vef Norðurorku er myndband frá hreinsistöðinni þar sem fráveitusigtin er sýnd og farið yfir hvernig blautþurrkur og annað rusl er hreinsað frá. Smellið hér til að horfa.
Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn
Framtíð menntastofnana á Akureyri varðar okkur öll
Framtíð heilbrigðisþjónustu á Akureyri er í sjónmáli
Fullveldi