Fara í efni
Umræðan

„Svona framkoma verður ekki liðin“

Tryggvi Jóhannsson, formaður verkalýðsfélagsins Einingar-Iðju, lýsir miklum vonbrigðum með þá ákvörðun stjórnar Norðurorku að vilja hækka gjaldskrá fyrirtækisins meira um næstu áramót en yfirlýst stefna Akureyrarbæjar er. Þetta kemur fram í yfirlýsingu á vef verkalýðsfélagsins.

Eins og akureyri.net fjallaði um í morgun hefur meirihluti stjórnar Norðurorku samþykkt að um áramót hækki gjaldskrá vatnsveitu um 2,5%, rafmagns um 5%, gjaldskrá hitaveitu um 5,5% og fráveitu um 7%.

Eftirfarandi var birt á vef Einingar-Iðju í dag:

Fram hefur komið að meirihluti stjórnar Norðurorku vill hækka gjaldskrá fyrirtækisins meira um næstu áramót en yfirlýst stefna Akureyrarbæjar er varðandi slíkar hækkanir. Akureyrarbær á 98% hlut í Norðurorku.

Tryggvi formaður Einingar-Iðju lýsir miklum vonbrigðum með þessa ákvörðun stjórnar Norðurorku. „Það er með miklum ólíkindum að stjórn Norðurorku ætli að hlaupast undan ábyrgð í því mikilvæga verkefni sem við erum í að ná stöðugleika í þjóðfélaginu. Félagsmenn Einingar-Iðju hafa lagt sitt af mörkum allt frá undirritun samninga 2024.“

Tryggvi fer fram á það við stjórn Norðurorku að endurskoða þessa ákvörðun strax og halda öllum hækkunum innan við 2,5%. Jafnframt krefst Tryggvi þess að bæjarstjórn Akureyrar axli sína ábyrgð í málinu og beiti sér fyrir því að fyrirtæki sem er í stærstum hluta í eigu Akureyrarbæjar haldi gefin loforð frá því að framlenging samninga var undirrituð 8. október sl.

Svona framkoma verður ekki liðin af hálfu Einingar-Iðju.

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15

Hvað gerist í síðari hálfleik? 

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
19. október 2026 | kl. 16:30

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00