Fara í efni
Umræðan

KA/Þór hefur leik í bikarkeppninni í kvöld

Hafrún Linda Guðmundsdóttir fer inn úr vinstra horninu í leik KA/Þórs og Fram um nýliðna helgi. Ethel Gyða Bjarnasen er til varnar í marki Fram, en Lena Margrét Valdimarsdóttir (23) kemur ekki vörnum við. Mynd: Ármann Hinrik.

Handboltakonurnar í KA/Þór hafa nægu að sinna í vikunni, tveir leikir á dagskránni, sá fyrri í kvöld og það er bikarleikur.

Bikarkeppni HSÍ í handknattleik kvenna er að fara í gang og fara sex leikir fram núna í vikunni. KA/Þór sækir Fjölni heim í Grafarvoginn í kvöld. Fjölnir leikur í næstefstu deild Íslandsmótsins, Grill 66 deildinni, og er þar í 5. sæti, en KA/Þór er í 7. sæti efstu deildar. Það má því búast við sigri KA/Þórs, en í bikarkeppni getur auðvitað ýmislegt gerst þótt lið spili ekki í sömu deild.


  • Handbolti
    Bikarkeppni HSÍ
    Fjölnishöllin í Grafarvogi kl. 19
    Fjölnir - KA/Þór

Aðrar viðureignir í þessari fyrstu umferð bikarkeppninnar eru Stjarnan gegn ÍBV, Víkingur gegn Selfossi, FH gegn HK og Afturelding gegn ÍR í kvöld og svo Grótta gegn Fram á morgun. Valur og Haukar sitja hjá og koma inn í átta liða úrslitin ásamt sigurliðunum í þessum sex viðureignum.

Erum við ekki í sama liði?

Þorleifur Ananíasson skrifar
16. nóvember 2026 | kl. 06:00

Tíu milljarða halli

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
15. nóvember 2026 | kl. 11:45

Tenerife í stað Kaupmannahafnar – eru áherslurnar réttar?

Þórhallur Jónsson skrifar
10. nóvember 2026 | kl. 15:45

Icelandair ætti að horfa norður

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
09. nóvember 2026 | kl. 19:30

Mikilvæg skref í átt að samþættingu þjónustu við eldri borgara

Guðbjörg Anna Björnsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 12:30

Framtíð, atvinna og velferð í verki

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 11:00