Handbolti: Öruggur sigur Fram gegn Þór
Þórsarar tóku á móti Fram í kvöld í efstu deild karla í handknattleik, Olísdeildinni. Gestirnir voru með yfirhöndina allan tímann og unnu þægilegan sigur, 34:27. Ekkert lát er á stigaþurrð Þórsara sem hafa nú tapað 8 af síðustu 9 leikjum sínum í deildinni, eftir að hafa unnið tvo af fyrstu þremur.
Framarar gerðu fyrstu þrjú mörk leiksins og Þór komst ekki á blað fyrr en eftir 8 mínútna leik með marki úr vítakasti. Gestirnir voru alltaf skrefi á undan allan hálfleikinn og munurinn varð aldrei minni en þrjú mörk. Mest munaði 7 mörkum á liðunum, 16:9, en Þórsarar gerðu tvö síðustu mörk hálfleiksins og 16:11 voru hálfleikstölur.
Slæmur kafli á eftir góðum
Þórsarar náðu góðum kafla snemma í seinni hálfleik og náðu að minnka muninn í þrjú mörk. En þá kom slæmur kafli þar sem þeir fóru illa að ráði sínu í sókninni, ásamt því að gefa auðveld færi í vörninni, og á þrettán mínútna kafla skoruðu þeir aðeins þrjú mörk gegn tíu mörkum gestanna. Staðan var þá orðin 29:19 og úrslitin ráðin. Lokatölur 34:27 í leik þar sem allt of margt fór úrskeiðis.
Þórsliðið er ennþá að berjast við að ná stöðugleika, því liðið á marga fína spretti í leikjum sínum. Í þessum leik klúðruðust allt of margar sóknir út af töpuðum bolta, ótímabærum skotum úr afleitum færum og slökum skotum úr góðum færum. Og Framarar áttu allt of oft grunsamlega auðvelt með að koma sér í góð færi og nýta þau. Skotnýting gestanna var 65% en rétt um 50% hjá Þór.

Bertram Simonsen var drjúgur í sókn og vörn gegn Fram og hér fær hann óblíðar viðtökur hjá Framaranum Degi Fannari Möller. Mynd: Ármann Hinrik.
Gríðarlega þýðingarmiklir leikir framundan
Enn eru þrjár umferðir eftir af mótinu þangað til gert verður hlé á því þangað til í febrúar. Í þessum leikjum mæta Þórsarar liðum sem eru með þeim í botnbaráttunni og hagstæð úrslit úr þeim gætu fleytt þeim í áttina að sæti í úrslitakeppninni. Að sama skapi gætu Þórsarar verið komnir í fallsæti ef illa fer í þessum leikjum, þannig að það eru afar þýðingarmiklar vikur framundan.
Næsti leikur liðsins er útileikur gegn HK, föstudaginn 4. desember, en HK og Þór eru jöfn í 10.-11. sæti deildarinnar með 6 stig.
Mörk Þórs: Bertram Simonsen 5, William Skovsager 5 (4 víti), Mikkel Bak Scheumann Jensen 4, Hafþór Már Vignisson 4, Jóhann Geir Sævarsson 2, Oddur Gretarsson 2, Brynjar Hólm Grétarsson 1, Gunnar Bragi Reimarsson 1, Hákon Ingi Halldórsson 1, Lárus Breki Gærdbo Ágústsson 1, Sigurður Ringsted Sigurðsson 1.
Varin skot: Nikola Radovanovic 12, Tristan Ylur Guðjónsson 0.
Mörk Fram: Viktor Sigurðsson 7, Marel Baldvinsson 6, Ívar Logi Styrmisson 5 (5 víti), Dagur Fannar Möller 4, Max Emil Stenlund 4, Haukur Ingi Hauksson 3, Arnar Snær Magnússon 1, Kjartan Þór Júlíusson 1, Kristján Pétur Barðason 1, Sigurður Bjarki Jónsson 1, Theodór Sigurðsson 1.
Varin skot: Arnór Máni Daðason 17 (1 víti), Stefán Freyr Jónsson 0.
Talaðu niður atvinnugreinina, hækkaðu svo skatta
Ingvexit?: Þegar þingmenn gleyma kjósendum sínum
Við eigum að vera við stýrið!
Erum við ekki í sama liði?