Fara í efni
Umræðan

Mjög sannfærandi sigur KA-manna á HK

Fyrirliðinn Daði Jónsson var sem klettur í vörninni gegn HK og skoraði auk þess tvö mörk úr hraðaupphlaupi. Mynd: Ármann Hinrik.

KA fékk HK í heimsókn í kvöld í efstu deild karla í handknattleik, Olísdeildinni, og vann sannfærandi 36:25 sigur, eftir að staðan hafði verið 20:14 í leikhléi. Gott gengi KA í deildinni heldur þar með áfram og liðið ætlar sér greinilega stóra hluti í toppbaráttunni.

Gestirnir skoruðu fyrsta mark leiksins úr vítakasti en KA skoraði síðan næstu sex mörk og náði þægilegu forskoti. Þessi munur hélst út hálfleikinn og staðan 20:14 KA í vil þegar flautað var til leikhlés.

Seinni hálfleikur var lengst af nokkuð jafn og þegar 10 mínútur voru eftir af leiknum minnkaði HK muninn í fjögur mörk, 28:24. Hafi gestirnir haldið að þeir ættu mögulega einhverja von um stig þá hurfu þær snarlega eftir að KA skoraði 6 mörk á næstu 6 mínútum og munurinn orðinn 10 mörk. Lokatölur urðu 11 marka sigur KA, 36:25.

Bjarni Ófeigur Valdimarsson þrumar hér að HK-markinu en Örn Alexandersson stekkur upp og nær að verjast skotinu. Mynd: Ármann Hinrik.

Dagur Árni markahæstur og Ágúst Elí lokaði markinu

Að Dagur Árni Heimisson skyldi hafa verið markahæstur KA-manna í leiknum kemur kannski fáum á óvart en hann skoraði 11 mörk úr 13 skotum að þessu sinni. Andri Freyr Friðriksson nýtti færin sín vel og skoraði 6 mörk. Daði Jónsson var klettur í vörninni, auk þess að skora tvö mörk úr hraðaupphlaupum. Ágúst Elí Björgvinsson lokaði síðan markinu á löngum köflum og endaði með  20 skot varin, eða 45% þeirra sem hann fékk á sig. Fleiri nöfn mætti telja til og flest bendir í þá átt að KA-liðið sé að slípast vel saman og í undanförnum leikjum hefur það verið að ná sífellt betri takti.

Enn eru þrjár umferðir eftir af mótinu þangað til hlé verður gert á því fram í febrúar og KA á heimaleik í þeim öllum. Næsti leikur liðsins er gegn Víkingi, fimmtudaginn 3. desember.

Mörk KA: Dagur Árni Heimisson 11 (3 víti), Andri Freyr Friðriksson 6, Bjarni Ófeigur Valdimarsson 5, Dagur Gautason 5, Daði Jónsson 2, Jens Bragi Bergþórsson 2, Morten Linder 2, Arnór Ísak Haddsson 1, Einar Birgir Stefánsson 1, Patrekur Stefánsson 1.

Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 20 (3 víti), Bruno Bernat 0.

Mörk HK: Alex Máni Oddnýjarson 7, Kári Tómas Hauksson 7 (1 víti), Andri Þór Helgason 3, Trúgvi Hávardsson 3, Örn Alexandersson 3, Gunnar Dan Hlynsson 1, Tómas Sigurðarson 1.

Varin skot: Brynjar Vignir Sigurjónsson 16, Patrekur Guðni Þorbergsson 2.

Þegar hækkanir eru auglýstar sem lækkanir

Páll Kristjánsson skrifar
25. nóvember 2026 | kl. 10:00

Talaðu niður atvinnugreinina, hækkaðu svo skatta

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
23. nóvember 2026 | kl. 14:15

Ingvexit?: Þegar þingmenn gleyma kjósendum sínum

Axel Björnsson skrifar
18. nóvember 2026 | kl. 11:45

Við eigum að vera við stýrið!

Svava Björk Ólafsdóttir skrifar
18. nóvember 2026 | kl. 11:15

Erum við ekki í sama liði?

Þorleifur Ananíasson skrifar
16. nóvember 2026 | kl. 06:00

Tíu milljarða halli

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
15. nóvember 2026 | kl. 11:45