Fara í efni
Umræðan

Fiðringur haldinn í fimmta skipti á morgun

Hæfileikakeppnin Fiðringur fer fram í Hofi á Akureyri á morgun, miðvikudag 6. maí. Um er að ræða keppni fyrir nemendur í 8.-10. bekk grunnskólanna á Norðurlandi og í ár taka 10 skólar þátt, allt frá Hvammstanga til Húsavíkur. Varmahlíðarskóli tekur nú þátt í fyrsta sinn, „og stefnan er að virkja alla grunnskóla á svæðinu frá Borðeyri til Bakkafjarðar,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum Fiðrings.

Nemendur á unglingastigi hafa unnið að atriðum sínum alla vorönnina með leiðbeinendum, „en mikil áhersla er lögð á sjálfstæði og lýðræðislega vinnu. Unglingarnir skapa allt sjálfir, frá hugmynd að atriði til sviðshreyfinga, búninga, leikmyndar, ljósa og hljóðs. Verkefnið eflir því sköpun og tjáningu nemenda sem fá að koma sínum hugðarefnum á framfæri á listrænan hátt.“

  • Í dómarahléi verður Fiðringslagið flutt sem í ár er lagið „Hvar ertu nú?“ með Maron Birni, sem mætir og skemmtir gestum.
  • Kynnar verða leikarnir Hólmfríður Hafliðadóttir og Níels Thibaud Girerd en þau léku hjá Leikfélagi Akureyrar í vetur
  • Í dómnefnd sitja Bergur Þór Ingólfsson leikhússtjóri, Ingunn Elísabet Hreinsdóttir dansari og kennari og Rebekka Rut fulltrúi Ungmennaráðs Akureyrar
  • Sérstök verðlaun verða veitt fyrir skapandi notkun íslenskunnar, metin af Eyrúnu Huld Haraldsdóttur íslenskukennara

Miðaverð er 1500 krónur – hér er hægt að kaupa.

Verkefnið er styrkt af sóknaráætlun SSNE, sóknaráætlun SSNV og Menningarfélagi Akureyrar. Sindri Swan tók meðfylgjandi myndir á Fiðringi 2025.

Beinum kastljósinu að atvinnulífinu

Karl Eskil Pálsson skrifar
29. september 2026 | kl. 20:15

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00

Ónýtt drasl-fólkið

Helgi Þórsson skrifar
15. september 2026 | kl. 20:00