Fara í efni
Umræðan

„Sveitasælan“ þykir ómetanlegt tækifæri

Myndir af vef Hrafnagilsskóla

Nemendur á unglingastigi í Hrafnagilsskóla hafa tekið þátt í áhugaverðu tilraunaverkefni í vetur í samstarfi við hjónin Berglindi Kristinsdóttur og Jón Elvar Hjörleifsson bændur á bænum Hrafnagili. Krakkarnir taka þátt í hefðbundnum bústörfum á bænum og tilfallandi verkefnum sem geta verið árstíðabundin og njóta leiðsagnar og fræðslu Berglindar og Jóns Elvars að því er fram kemur á heimasíðu skólans, þar sem segir að þetta sé „ómetanlegt tækifæri fyrir nemendur til þess að kynnast störfum bænda og afleiddum störfum“.


Verkefnið er hluti af svokölluðu bundnu vali sem eru 80 mínútna lotur einu sinni í viku. Í bundnu vali er nemendum á unglingastigi skipt í fimm aldursblandaða hópa, um 12–14 nemendur eru í hverjum hópi og fer hver hópur í sjö skipti á hverja stöð. Stöðvarnar eru þessar:

  • Betri líðan
  • Náms- og starfsfræðsla
  • Tónlist
  • Heimilisfræði
  • Sveitasæla

Óðinn Ásgeirsson kennari hefur umsjón með sveitasælunni. Á þeirri stöð taka hjónin Jón Elvar og Berglind á móti hópunum heima á  Hrafnagili en bærinn er í göngufæri frá skólanum. 


Dæmi um verkefni og störf sem nemendur fá að kynnast eru t.d. umhirða sauðfjár eins og rúningur, klaufsnyrtingar, sauðburður og fleira. Einnig má nefna að nemendur hafa sinnt kálfum en í því felst að gefa þeim mjólk, fóðurbæti og hey og halda vistarverum þeirra snyrtilegum. Nemendur hafa fengið að fylgjast með störfum frjótækna, dýralækna og iðnaðarmanna sem sinna viðhaldi á bænum. Að auki hafa nemendur sett niður kartöflur og farið í berjamó svo eitthvað sé nefnt.


„Ávinningur af verkefni eins og þessu er margþættur,“ segir á vef Hrafnagilsskóla. „Nemendur læra mjög margt sem ekki er hægt að læra af bókum og fá tækifæri til að kynnast sínu nærumhverfi. Einnig er þetta ómetanlegt tækifæri fyrir nemendur til þess að kynnast störfum bænda og afleiddum störfum. Þannig er þetta mikilvægur þáttur í starfsfræðslu ekki síst í ljósi þess að landbúnaður er mikilvægur atvinnuvegur í sveitarfélaginu og landinu öllu.“

Berglind og Jón áttu frumkvæðið að samstarfinu og hafa séð um skipulagningu og utanumhald í allan vetur. „Þau eru einstaklega viljug til þess að miðla af sinni þekkingu og hafa sýnt í verki að þeim er verkefnið mikilvægt og kært. Framlag þeirra er því bæði óeigingjarnt og ómetanlegt fyrir okkur í Hrafnagilsskóla,“ segir á vef skólans.

  • Fleiri myndir má sjá hér á vef skólans:

Sveitasæla – samstarf við Berglindi og Jón Elvar á Hrafnagili

Beinum kastljósinu að atvinnulífinu

Karl Eskil Pálsson skrifar
29. september 2026 | kl. 20:15

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00

Ónýtt drasl-fólkið

Helgi Þórsson skrifar
15. september 2026 | kl. 20:00