Brýn þörf á bættri aðstöðu í Lundarskóla
Á fundi sínum í síðustu viku fól umhverfis- og mannvirkjaráð Akureyrarbæjar sviðsstjóra að senda út verðkönnun á tveimur samtengdum kennslustofum til að setja upp við Lundarskóla. Þetta á að gera til að koma til móts við brýna þörf á kennslurými við skólann, eftir að skólastjóri Lundarskóla sendi út opinbert ákall um bætta aðstöðu.
Ákallið sendi Maríanna Ragnarsdóttir, skólastjóri Lundarskóla, til fræðslu- og lýðheilsuráðs í febrúarmánuði síðastliðnum. Ráðið tók erindið fyrir á fundi sínum þann 25. mars og vísaði því til umræðu í umhverfis- og mannvirkjaráði, þar sem það komst á dagskrá í síðustu viku.
Lundarskóli er fjölmennasti grunnskólinn á Akureyri
Í erindi sínu segir Maríanna að Lundarskóli sé fjölmennasti grunnskólinn á Akureyri, með 486 nemendur og 95 starfsmenn. „Skólahúsnæðið er of lítið fyrir stórt skólasamfélag og ber ekki þann fjölda sem starfar í skólanum og þá þjónustu sem okkur ber að veita svo að nemendur fái tækifæri til að njóta sín til fulls,“ segir í bréfi Maríönnu.
Síðastliðið haust óskaði Lundarskóli eftir því við fræðslu- og lýðheilsuráð að fá 2-3 lausar kennslustofur á skólalóðina vegna fjölgunar nemenda en svo virðist sem ekki hafi verið ákveðið að stíga það skref á þeim tíma. Maríanna bendir á að lítið hafi þokast í þessum málum síðan þá og bætir við að einnig þurfi að bæta skólalóðina og veita betri tækifæri til leikja og útivistar á henni.
- Frétt akureyri.net frá október 2025: Þröngt í Lundarskóla – þurfa lausar stofur
Við afgreiðslu málsins í umhverfis- og mannvirkjaráði settu Kristín Helga Schiöth, fulltrúi Samfylkingar, og Ólafur Kjartansson, fulltrúi Vinstri grænna, fram eftirfarandi bókun:
Við hörmum að sú staða sé komin upp í húsnæðismálum grunnskóla á Akureyri að skólastjórnendur sjái sig tilneydda til að senda slíkt ákall til bæjarins um nauðsynlegar úrbætur. Við gerum einnig athugasemd við málshraða erindisins og að erindinu hafi ekki verið beint strax til bæjarráðs í febrúar sem hefði verið eðlilegri farvegur og flýtt fyrir úrlausn máls.
Afgreiðsla málsins og fyrirhuguð verðkönnun á lausum kennslustofum er þó háð samþykki bæjarráðs, þannig að óvíst er hvenær það kemst á skrið.
Maríanna beinir orðum sínum ekki einungis til fræðslu- og lýðheilsuráðs, því í niðurlagi bréfsins vekur hún athygli frambjóðenda á mikilvægi málsins: „Hér er því opinbert ákall til núverandi fulltrúa í sveitastjórnarkosningum á Akureyri og einnig til þeirra sem bjóða sig fram til sveitarstjórnarkosningar þann 16.maí næstkomandi að bæta aðstöðu í Lundarskóla með nám, leik og velferð nemenda í forgrunni.
Við þurfum öll að vinna saman að bættu skólastarfi, skólahúsnæði og umgjörð,“ segir í ákalli Maríönnu Ragnarsdóttur, skólastjóra Lundarskóla.
Afreks Akademía Akureyrar
Hver stendur með kennurum – ef einhver?
Frá sigri mannsandans yfir í neyðarástand
Villandi samanburður við Norðmenn