Fara í efni
Umræðan

Fækkun ferða stendur – bæjarráð mótmælir

Grímseyjarferjan Sæfari siglir til hafnar. Mynd: María H. Tryggvadóttir

Bæjarráð Akureyrarbæjar mótmælir harðlega þeirri niðurstöðu Vegagerðarinnar að niðurfelling fimmtudagssiglinga til Grímseyjar á tímabilinu 15. janúar til 14. maí muni standa. Þá vekur vísun Vegagerðarinnar í skerðingar á fjárframlögum til almenningssamngangna á komandi árum furðu bæjarráðs.

Hverfisráð Grímseyjar og bæjarráð Akureyrarbæjar höfðu mótmælt ákvörðun Vegagerðarinnar um niðurfellingu fimmtudagsferða á áðurnefndu tímabili, eins og akureyri.net greindi frá í frétt 26. apríl, og óskaði Ásthildur Sturludóttir, fyrrverandi bæjarstjóri, eftir upplýsingum um ástæður þessarar niðurfellingar og að ákvörðunin yrði endurskoðuð. 

Í svari Vegagerðarinnar segir að samkvæmt greiningum sem gerðar hafi verið sé fimmtudagsferðin minnst notuð á áðurnefndu tímabili. Farmflutningar séu til dæmis innan við fjórðungur af farmflutningi miðvikudagsferða. 

Myndrit úr minnisblaði Vegagerðarinnar sem sýnir magn flutninga til og frá Grímsey eftir vikudögum á tímabilinu janúar til maí loka.

Horfa þurfi heildstætt á málið

Í bókun bæjarráðs frá því í gær segir meðal annars: „Bæjarráð mótmælir harðlega þeirri niðurstöðu að ekki sé unnt að verða við beiðninni að svo stöddu. Við mat á samgönguþörf Grímseyjar þarf að horfa heildstætt til íbúa, atvinnulífs, þjónustuþarfa og vaxandi fjölda ferðamanna yfir vetrartímann, en ekki eingöngu til gagna um flutning afla og fjölda þeirra sem hafa vetrarsetu í eyjunni.“

Fullyrðingar um fiskflutning stangast á

Varðandi flutning á afla virðist fullyrðing Vegagerðarinnar stangast á við fullyrðingu í bókun hverfisráðs Grímseyjar frá því í apríl þegar niðurfellingunni var mótmælt. Í erindi hverfisráðsins er bent á að fimmtudagsferðirnar séu lykilþáttur í að tryggja ferskleika sjávarafurða úr eyjunni á markað. Í minnisblaði Vegagerðarinnar dagsettu 13. maí, sem fjallað var um í bæjarráði í gær, segir orðrétt: „Samkvæmt þeim upplýsingum sem Vegagerðin hefur aflað sér, er ekki talið nauðsynlegt að afli fari í land á fimmtudögum.“

Vekur furðu að vísa í skerðingar á fjárframlögum

Í minnisblaði Vegagerðarinnar er að lokum farið yfir fjárveitingar til almenningssamgangna og vekur það furðu bæjarráðs að þar sé vísað til skerðingar á fjárframlögum til almenningssamgangna á komandi árum. „Slík framsetning kallar á skýr svör um hvað það þýðir fyrir brothættar byggðir sem reiða sig á öruggar og reglubundnar samgöngur fyrir grunnþjónustu og atvinnulíf,“ segir meðal annars í bókun bæjarráðs, sem hefur falið bæjarstjóra að kalla eftir nánari upplýsingum um þetta atriði. 

Hér er vísað til eftirfarandi orða í minnisblaði Vegagerðarinnar: „Fyrir liggur að málaflokkur almenningssamgangna er undirfjármagnaður á fjárlögum/fjármálaáætlun og er gert ráð fyrir frekri [sic] skerðingu á fjárframlögum til almenningssamgangna á komandi árum. Í ljósi þessa sér Vegagerðin sér ekki fært að bregðast við beiðni Akureyrarbæjar um að fjölga ferðum aftur að svo stöddu.“

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15

Hvað gerist í síðari hálfleik? 

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
19. október 2026 | kl. 16:30

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00