Skrúfa skemmdist og Sæfari siglir hægar
Grímseyjarferjan Sæfari hefur ítrekað komið seinna til Grímseyjar í sumar en áætlun gerir ráð fyrir. Samkvæmt Vegagerðinni má rekja tafirnar til skemmda á skrúfu skipsins sem verða lagfærðar þegar ferjan fer í slipp í haust.
„Lítilsháttar tjón varð á skrúfubúnaði ferjunnar Sæfara þann 25. júní. Skrúfublöð rákust í botn í höfninni í Grímsey og eru endar þeirra lítillega nudduð og marin. Ekki er um mikla skemmd að ræða. Samkvæmt okkar upplýsingum frá skipstjóra er ferjan nú u.þ.b. 10 – 15 mínútum lengur á leiðinni þar sem heldur er siglt undir minna álagi á vélum,“ segir Hilmar Stefánsson forstöðumaður almenningssamgangna hjá Vegagerðinni. Hann segir að þetta verði lagað við næstu slipptöku. Ekki sé búið að tímasetja slippinn en skipið verði keyrt svona út sumarvertíðina enda vont að stoppa siglingar á háannatíma.
Seinkanirnar bagalegar fyrir ferðafólk
Halla Ingólfsdóttir, eigandi Artic Trip og jafnframt formaður hverfisráðs eyjunnar, segir að vissulega séu seinkanir á ferjunni bagalegar, sérstaklega þegar seinkanir hafa farið upp í allt að 30 mínútur. Við það styttist tími ferðafólks í eyjunni en í dagsferðum skiptir hver mínúta máli. Þá sé lítið tilhlökkunarefni fyrir eyjaskeggja að ferjan sé enn einu sinni á leið í slipp í vetur með tilheyrandi skerðingu á þjónustu við eyjuna, en þess má geta að ferjan var í slipp allan október í fyrra og í níu vikur eftir áramót.
Vilja halda fimmtudagsferðunum
Seinkanirnar á ferjunni í sumar séu hins vegar aðeins smámunir miðað við önnur atriði sem Grímseyingar hafa gagnrýnt í þjónustu Vegagerðarinnar. Hafa þeir harðlega mótmælt fyrirhugaðri fækkun á ferðum Grímseyjarferjunnar yfir vetrartímann en frá og með 1. október mun fimmtudagsferðin leggjast niður fram á vor. Telja heimamenn að breytingin muni hafa afar neikvæð áhrif á samfélagið og atvinnulífið.„Ferjan er lífæð Grímseyjar. Hún flytur ekki aðeins ferðamenn heldur líka matvöru, vörur til fyrirtækja og aflann í land. Við erum algjörlega háð því að samgöngurnar séu áreiðanlegar,“ segir Halla og heldur áfram: „Þegar veður hamlar siglingum fellur ferð stundum niður. Hingað til hefur oft verið hægt að bæta það upp með næstu áætluðu ferð, en þegar ferðunum fækkar verður ekkert svigrúm lengur. Þá getur liðið allt að vika á milli ferða sem skapar mikla óvissu fyrir bæði íbúa og fyrirtæki. Ef þróunin heldur svona áfram hlýtur maður að spyrja hvort raunverulega sé vilji til að halda samfélaginu í Grímsey lifandi. Samgöngurnar eru forsenda þess að fólk geti búið hér, rekið fyrirtæki og tekið á móti gestum. Ef þær versna stöðugt er verið að grafa undan samfélaginu“
Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál?
Landbúnaður, fæðuöryggi, byggðamál og ESB
Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu
Svæðisborgin Akureyri