Indverskur matur og kvíðaspurningin
Á dögunum fór ég út að borða með góðum og gömlum vini. Við ákváðum að fá okkur indverskan málsverð enda búum við vel hér á Akureyri að eiga frábæran indverskan veitingastað.
Það var mikið að gera á staðnum, ys og þys og margir að bíða eftir borði. Maturinn kom á borðið og bragðaðist að vonum vel. Við svitnuðum yfir Tandoori lambinu og kældum bragðlaukana með mangó Lassi. Frábært og bragðmikið eins og svo fjölmargt annað sem okkar kynslóð fékk ekki að njóta fyrr en á fullorðinsárum. Heimurinn var einfaldari, kyrrlátari og fyrirsjáanlegri þegar við vorum að alast upp. Það var hægt að fara á Bautann eða í Krókeyrarnesti og borða hamborgara eða mínútusteik en það næsta sem við komumst indverskum mat var að borða fiskibollur í gulri sósu sem var með daufum karrýkeim.
Var heimurinn leiðinlegri þá? Tja eiginlega ekki þar sem að væntingarnar voru bara í samræmi við umhverfið, bara eins og maturinn, töluvert bragðdaufari.
Við vinirnir fórum að rifja upp góða og gamla daga og þar kom að ég fékk spurningu; „Inga manst þú eftir því, þegar við vorum lítil, að þú hafir verið kvíðin?“ Mér eiginlega svelgdist á hrísgrjónunum, ég þurfti svo rækilega að spóla til baka og hugsa þetta. Kvíðin? Ég man alveg eftir því að hafa verið döpur, áhyggjufull eða bara einhvern vegin ónóg sjálfri mér á einhvern hátt sem ég kunni ekki að útskýra. Það hins vegar var eitthvað sem ég tengdi alls ekki við kvíða. Ég kveið stundum fyrir einhverju ákveðnu, við vissum ekki að hægt væri að vera kvíðinn án ástæðu og hugtakið kvíðaröskun var sannarlega ekki í umræðunni. Ekki í okkar huga. Kannski vissum við af einhverjum fullorðnum sem var „slæmur á taugum“ en börn voru ekki kvíðin.
Við ræddum þetta um stund og svo eitthvað annað eins og gengur, en spurningin um kvíðann sat eftir í höfðinu á mér.
Auðvitað vorum við kvíðin, við vorum alveg jafn kvíðin eins og börn og unglingar eru í dag. Skólaforðun var kannski ekki hugtak þá en það voru áreiðanlega jafn margir þá og nú sem kviðu fyrir skóladeginum, áttu erfitt heima, bjuggu við ofbeldi eða vanrækslu, voru með ADHD, gekk illa að læra eða voru einangraðir félagslega. Í stuttu máli, glímdu við allt það í lífinu, sem kyndir undir kvíða og sársauka á sálinni. Einelti tíðkaðist og var grimmilegt en það var ekki rætt og enginn sem kom til hjálpar. Tímarnir eru breyttir en mannsheilinn hefur ekkert breyst. Það sem hefur þó breyst síðan ég var barn er það að kvíði er viðurkenndur og það er hægt að meðhöndla hann þegar hann fer úr böndunum. Það mega allir upplifa kvíða, hann er erfiður en hann er ekki óeðlilegur.
Ég var sjálf orðin býsna fullorðin þegar ég lærði af fagfólki að erfiðar tilfinningar sem ég hafði lengi trúað að stöfuðu af mínum eigin vanmætti, tilfinningasemi eða ímyndunarveiki, væru eðlileg kvíðaviðbrögð við áföllum og erfiðleikum. Þessar tilfinningar áttu fullan tilverurétt og það var hægt að skoða þær frá ýmsum hliðum en gagnlegast af öllu, fannst mér og þykir enn, var að gangast við þeim. Að setja á þær orð og leyfa þeim að vera með í spilinu fremur en að heyja við þær stríð sem er ómögulegt að vinna. Að sættast við þá staðreynd að það er erfitt verkefni að vera manneskja.
Það er dýrmætt að eiga góða vini og fjölskyldu sem eru með okkur, hlusta og gefa ráð. Það að hitta fagaðila er líka mikilvægt, fólk sem kann þá list að spyrja okkur réttu spurninganna þannig að við sjálf getum komið auga á svörin. Hjá góðu fagfólki fékk ég að láni, visku, fagþekkingu og lífsreynslu sem hjálpaði mér að vinna mína heimavinnu og fátt hefur reynst mér betur í lífinu. Fólk sem lánar okkur vit til að greiða úr ofhugsunum og hugarflækjum. Fólk sem lánar okkur fagþekkingu til að upp rifja hver við viljum vera og taka til í tilverunni okkar.
Í október sem er tileinkaður vitundarvakningu um geðheilbrigði er rétt að minna á að leyfa ekki kvíðanum og öðrum erfiðum tilfinningum að koma í veg fyrir að við njótum lífsins. Að vinna með meðferðaraðila eða fara á námskeið til að ná betri stjórn á eigin lífi er munaður sem við áttum ekki völ á hér áður fyrr en nú eru aðrir tímar. Í dag vitum við að indverskur matur bragðast vel og við vitum líka að það er gott að stunda geðrækt. Njótum haustsins, drögum andann djúpt og munum að það er aldrei of seint að byrja á góðum athöfnum.
Inga Dagný Eydal er hjúkrunarfræðingur og ráðgjafi hjá Heilsu- og sálfræðiþjónustunni.
Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi
Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað
Fróðlegir fundir í kjördæminu
Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum