Ná ekki ferjunni eftir breytingar hjá Strætó
Endurskoðun stendur nú yfir á tengingu strætóleiðar 78 og Grímseyjarferjunnar. Að sögn Hilmars Stefánssonar, forstöðumanns almenningssamgangna hjá Vegagerðinni, verða breytingar gerðar með haustinu.
Strætó 78 fer frá Akureyri alla virka daga með viðkomu á Dalvík. Samkvæmt núgildandi áætlun kemur fyrsta ferð dagsins til Dalvíkur kl. 9:04 en Grímseyjarferjan leggur af stað kl. 9:00 eða fjórum mínútum áður en strætóinn kemur til Dalvíkur. Í fyrra kom vagninn kl. 8:51 og þó tíminn væri naumur náðu strætófarþegar oftast ferjunni. Fyrr á þessu ári var áætluninni hins vegar breytt og nú falla ferðirnar ekki lengur saman.

Mynd: Visit Grímsey
Ekki samfelld þjónusta
Halla Ingólfsdóttir, formaður hverfisráðs Grímseyjar, gagnrýnir að samgöngur við eyjuna séu ekki skipulagðar sem ein samfelld þjónusta, ekki síst þar sem Vegagerðin reki bæði ferjuna og strætó. „Það er stöðugt verið að hvetja fólk til að nýta almenningssamgöngur, en það gengur ekki ef kerfið talar ekki saman,“ segir Halla og bætir við: „Ferjan, strætó og aðrar tengingar þurfa að vinna saman. Fyrir okkur skiptir þetta máli á hverjum degi, en líka fyrir þá sem vilja heimsækja eyjuna.“ Hún bendir jafnframt á að engar almenningssamgöngur séu í boði þegar ferjan kemur til Dalvíkur frá Grímsey og að farþegar þurfi að bíða til næsta dags eftir strætó. Það sé ekki aðeins óþægilegt fyrir ferðafólk heldur einnig marga íbúa Grímseyjar. „Hér í eyjunni er líka fólk sem er ekki með bílpróf og getur því ekki treyst á einkabíl þegar komið er í land,“ segir Halla.
Ný stoppustöð og breytt áætlun
Að sögn Hilmars er verið að undirbúa nýja stoppustöð fyrir strætó, beint á móti ferjunni, en hingað til hefur vagninn stoppað við Olís á Dalvík. Ný stoppustöð og breytingar á tímaáætlun, sem taka eiga gildi með haustinu, eiga að samræma betur ferðir strætós og ferjunnar. Hilmar bendir jafnframt á að strætófarþegar á leið til Grímseyjar geti beðið bílstjóra leiðar 78 um að hringja í skipstjóra ferjunnar, sem bíði þá með brottför, að því gefnu að strætó sé á áætlun. Sá möguleiki er hins vegar hvergi kynntur, hvorki á vef Strætó né Vegagerðarinnar. Þar kemur hins vegar skýrt fram, líkt og á heimasíðunni ferjur.is, að farþegar eigi að mæta í ferjuna 30 mínútum fyrir brottför.
Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál?
Landbúnaður, fæðuöryggi, byggðamál og ESB
Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu
Svæðisborgin Akureyri