Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi
Styðjum myndarlega viðgerðir og endurnýjun tækja og húsa og á Reykjalundi, en gleymum ekki Kristnesi við Eyjafjörð!
Hlýðum röddum þeirra sem reynt hafa árangursríka endurhæfingu við besta aðbúnað og hvetjandi umhverfisskilyrði, þær raddir þurfa að heyrast.
Jón Hlöðver Áskelsson greinir frá því hvaða björgunarhlutverki frábærir læknar, sjúkraþjálfarar og annað heilbrigðisstarfsfólk hafa gegnt fyrir hann í 37 ár.
Ég varð áttræður í fyrra og þau ár frá 44 ára aldri, þ.e. rúmlega 37 ár, get ég sannarlega þakkað fyrir að hluta læknum, sjúkraþjáfurum og öðru heilbrigðisstarfsfólki sjúkrahúsa og endurhæfingarstöðva.
Ég er tónlistarmaður að mennt og gegndi starfi skólastjóra Tónlistarskólans á Akureyri árið 1989. Þá tók líf mitt u-beygju því ég þurfti að gangast undir stóra heilaaðgerð og fjarlægt var blóðæxli sem búið hafði um sig í heilastofni. Þrátt fyrir það að aðgerðin hafi trúlega forðað mér úr lífshættu þá leiddi af henni varanleg skerðing á jafnvægi, hreyfigetu og lömun á andlitstaug. Síðar í lífinu hef ég gengist þrisvar undir liðskiptaaðgerðir. Alla tíð síðan hef ég þarfnast og notið einstakrar sjúkraþjálfunar nokkrum sinnum og annarra leiknisæfinga í viku hverri. Án þess hefði ég ekki getað notið lífsins á þann góða hátt sem ég geri. Fræg setning er eignuð kanadíska lækninum Sir William Osler (1849–1919), sem oft er kallaður „faðir nútímalækninga“, setningin hljóðar þannig: „Hlustaðu á sjúklinginn, hann er að segja þér greininguna“ Ef ég nú færi þessa setningu yfir á sjálfan mig finnst mér ég vera maður að meiru að segja frá því hvernig heilbrigðisstarfsfólk hefur undantekningalítið hlýtt á mig og látið þörf mína fyrir umönnun, líkamlega og andlega sitja í fyrirrúmi.
Ef ég nú ætti að greina þau skilyrði niður sem hafa reynst mér svo vel og ég hef notið eru:
1) Frábærir læknar og hjúkrunarfólk.
2) Sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar í hvetjandi og heilandi umhverfi.
3) Gott heimili og kærleiksríkir aðstandendur.
Ég hef verið svo heppinn að þessi skilyrði hafa öll verið uppfyllt hvað mig varðar og þar að auki hef ég alltaf getað sinnt störfum á mínum starfs- og áhugasviðum sem eru þó nokkur. Ef ég má í örstuttu máli lýsa líðan minni eftir því sem aðstæður buðu á mínu bataferli voru þessar:
Læknar og hjúkrunarfólk var mér ómissandi hlekkur í lífkeðjunni og sjúkrahúsin ræktu sannarlega bestu umönnun til að styrkja þá keðju. Að lokinni aðgerð og dvöl á Landsspítala - Borgarsjúkrahúsi fór ég í endurhæfingu á Grensásdeild, síðar á Reykjalund og loks á Kristnes - endurhæfingardeild. Þarna var maður farinn að finna meira til sjálfs síns og var komin í aðstöðu þar sem meira reyndi á sjálfsbjargarviðleitni svo ekki sé talað um örvun útiveru í fallegu umhverfi. Að lokum var svo heimkoman frábær, en þar þurfti líka ýmsu að breyta svo ég gæti notið umgengni á heimili mínu á við aðra og að búa svo um hnútana að ég sinnti að hluta mínum áhugamálum og því starfssviði sem ég er menntaður til.
Er ég lít um öxl þá ljóma mörg ljós minninga og bros sem lifna við upprifjun ýmissra atvika. Þegar ég minnist þeirra hugsa ég m.a. til Reykjalundar, m.a. reiðtúranna á hestum og róðraræfinga á Hafravatni, fegurðar, garða og skógar á Kristnesi ásamt sundlauginni þar og á Heilsustofnun NLFÍ Hveragerði. Mikið liggur að bjóða öllum sem þurfa á þjálfun að halda vegna veikinda, slysfara eða öldrunar kost á að njóta sjúkra- eða iðjuþjálfunar í fagurri náttúru við bestu heilbrigðisaðstæður. Stöndum vörð um og sýnum í verki stuðning við endurnýjun húsa- og tækjakosts á Reykjalundi! Vanrækt viðhald er skuld ríkis og þjóðar sem á að greiða. Sama gildir um endurhæfingu á Kristnesi. Hlýðum röddum þess fjölda fólks sem hliðstæða reynslu hefur eins og ég.
Að lokum minni ég á fyrrgreinda tilvitnun í sir William Osler, sem mætti umorða með setningunni:
„Ekkert um okkur án okkar“!
Jón Hlöðver Áskelsson er tónskáld á Akureyri
Fróðlegir fundir í kjördæminu
Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum
Beinum kastljósinu að atvinnulífinu
Bókasöfnin okkar