Fara í efni
Umræðan

Boltavikan endar með bæjarslag á sunnudag

Það verður nóg um að vera hjá Akureyrarliðum í íþróttum í vikunni fram undan, bæði heima og að heiman. Körfubolti, handbolti, blak, íshokkí og svo bæjarslagur í handboltanum á sunnudag þegar Þór tekur á móti KA í Olísdeild karla í handbolta.


  • Körfubolti – Í næstefstu deild Íslandsmóts kvenna í körfubolta, Bæjarins beztu deildinni eins og hún nefnist, tefla tvö Suðurnesjafélög fram b-liðum sínum. Kvennalið Þórs tekur á móti öðru þeirra, Keflvíkingum, á þriðjudag. Þór hefur unnið fjóra af fimm fyrstu leikjum sínum og er jafnt Selfossi og Haukum í 2.-4. sæti deildarinnar. Keflavík b kemur fast á hæla þeirra með þrjá sigra úr fimm fyrstu leikjum sínum.
  • Handbolti – Bikarkeppni HSÍ í handknattleik kvenna er að fara í gang og fara sex leikir fram núna í vikunni. KA/Þór sækir Fjölni heim í Grafarvoginn á miðvikudag. Fjölnir leikur í næstefstu deild Íslandsmótsins, Grill 66 deildinni og er þar í 5. sæti, en KA/Þór er í 7. sæti efstu deildar. Það má því búast við sigri KA/Þórs, en í bikarkeppni getur auðvitað ýmislegt gerst þótt lið spili ekki í sömu deild.
  • Blak – Blaklið KA í efstu deildum karla og kvenna, Unbroken-deildunum, fara bæði í Mosfellsbæinn á laugardag og mæta Aftureldingu. Karlaliðin spila á undan, en þar er KA í 5. sæti deildarinnar með átta stig og Afturelding í 6. sætinu með fjögur stig. Bæði liðin nokkuð frá toppbaráttunni í stigum talið, enn sem komið er. Kvennalið sömu félaga mætast einnig, og þar er KA einnig sæti ofar en Afturelding. KA er í 2. sæti Unbroken-deildar kvenna með 13 stig og Afturelding í 3. sætinu með 11 stig.
  • Handbolti – Vikan verður annasöm hjá handboltakonunum í KA/Þór því þær fá stutta hvíld eftir bikarleikinn við Fjölni. Strax á laugardag koma Eyjakonur í ÍBV norður og mæta KA/Þór í 10. umferð Olísdeildarinnar. Eyjakonur geta verið erfiðar við að eiga, eins og þær sýndu á dögunum þegar þær voru fyrstar til að hirða stig af toppliði Hauka með 31-31 jafntefli í Hafnarfirði. ÍBV er í 2. sæti deildarinnar með 15 stig úr fyrstu níu leikjunum, en KA/Þór er í 7. sætinu með fjögur stig
  • Íshokkí – Hokkíkonurnar í Skautafélagi Akureyrar hafa byrjað keppnistímabilið af krafti og eru efstar í Toppdeildinni með 13 stig úr fyrstu fimm leikjum sínum. Reykjavíkurfélögin eru bæði með fjögur stig, Fjölnir úr fjórum leikjum og SR úr fimm. SA hefur unnið fjóra leiki og tapað einum eftir framlengingu og vítakeppni. Það var gegn SR, en þessi lið mætast einmitt í Skautahöllinni á Akureyri á laugardag.
  • Körfubolti – Kvennalið Þórs í körfuboltanum á tvo leiki fram undan í vikunni, þann seinni á laugardag þegar Selfyssingar koma í heimsókn. Þar má búast við jöfnum og spennandi leik. Þegar þetta er skrifað eru liðin í 2. og 3. sæti deildarinnar, Selfyssingar með fimm sigra í sex leikjum og Þór mað fjóra sigra í fimm leikjum.
  • Handbolti – Á sunnudag er komið að bæjarslag í handboltanum þegar Þór tekur á móti KA í seinni viðureign þessara félaga í Olísdeild karla. Leikurinn er í 11. umferð mótsins, en liðin mættust í KA-heimilinu í 3. umferðinni fyrr í haust. Þar hafði Þór sigur, 35-31. Að loknum tíu umferðum er KA í 3. sæti deildarinnar með 14 stig, en Þór í 9. sætinu með sex stig. Nánar verður fjallað um bæjarslaginn þegar líður á vikuna.

ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER - körfubolti

  • Körfubolti
    Bæjarins beztu deild kvenna, 7. umferð
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19:30
    Þór - Keflavík b

MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER - handbolti

  • Handbolti
    Bikarkeppni HSÍ
    Fjölnishöllin í Grafarvogi kl. 19
    Fjölnir - KA/Þór

LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER - blak, handbolti, íshokkí, körfubolti

  • Blak
    Unbroken-deild karla
    Íþróttahúsið að Varmá kl. 13:30
    Afturelding - KA

  • Blak
    Unbroken-deild kvenna
    Íþróttahúsið að Varmá kl. 15:30
    Afturelding - KA

  • Handbolti
    Olísdeild kvenna, 10. umferð
    KA-heimilið kl. 15:30
    KA/Þór - ÍBV

  • Íshokkí
    Toppdeild kvenna
    Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
    SA - SR

  • Körfubolti
    Bæjarins beztu deild kvenna, 8. umferð
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 18:00
    Þór - Selfoss

SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER - handbolti

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 11. umferð
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 18:00
    Þór - KA

Stöður í deildum og leikjadagskrár

Blak

Handbolti

Íshokkí

Körfubolti


Lesendur eru hvattir til að minna á íþróttaviðburði hvers kyns sem fram undan eru í meistaraflokkum, sérstaklega ef eitthvað verður út undan og gleymist í þessari vikulegu yfirferð í vikubyrjun hér á akureyri.net – sendið tölvupóst í haraldur@akureyri.net ef koma þarf slíkum upplýsingum á framfæri.

Erum við ekki í sama liði?

Þorleifur Ananíasson skrifar
16. nóvember 2026 | kl. 06:00

Tíu milljarða halli

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
15. nóvember 2026 | kl. 11:45

Tenerife í stað Kaupmannahafnar – eru áherslurnar réttar?

Þórhallur Jónsson skrifar
10. nóvember 2026 | kl. 15:45

Icelandair ætti að horfa norður

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
09. nóvember 2026 | kl. 19:30

Mikilvæg skref í átt að samþættingu þjónustu við eldri borgara

Guðbjörg Anna Björnsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 12:30

Framtíð, atvinna og velferð í verki

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 11:00