Fara í efni
Umræðan

Afmælisdegi Fiske fagnað í Grímsey

Messa í Miðgarðakirkju í gær, sunnudag 10. nóvember. Mynd: Anna María Sigvaldadóttir

Árleg Fiske-hátíð er haldin í Grímsey í dag – á afmælisdegi Daniels Willard Fiske (1831-1904), velgjörðarmanns samfélagsins þar en hann steig þó aldrei fæti á land í eyjunni. 

„Þessi dagur er ávallt stór hátíðarstund og mikilvægur í huga íbúa eyjarinnar. Að vanda munu íbúar fagna deginum með samkomu í félagsheimilinu Múla. Boðið verður upp á girnilegt kvöldverðarhlaðborð kl. 18.00 og skemmtun í framhaldinu. Búist er við að um 30 gestum,“ segir á vef Akureyrarbæjar í dag.

Í tilefni af afmælinu var haldin messa í nýju Miðgarðakirkjunni í gær. Oddur Bjarni Þorkelsson, sóknarprestur í Dalvíkurprestakalli, sá um guðþjónustuna og lék Þórður Sigurðarson undir á harmonikku. „Allir sem voru staddir í eyjunni mættu. Vinna við smíði kirkjunnar gengur vel. Hún er að verða tilbúin að utan og stendur til að klára hana að innan í vetur,“ segir á vef sveitarfélagsins.

HVER VAR FISKE?

  • Daniel Willard Fiske var bandarískur prófessor við Cornell háskóla í New York ríki. Fiske lærði íslensku þegar hann stundaði nám í Danmörku 1849 og safnaði öllu íslensku efni sem til var á prenti auk ljósmynda af Íslandi. Stórt safn íslenskra bóka og ljósmynda er nú varðveitt í Cornell.
  • Fiske sigldi hringinn í kringum landið 1879, sá þá Grímsey tilsýndar og heillaðist af dugnaði og menningaráhuga íbúanna. Grímseyingar voru góðir skákmenn og þar sem Fiske var mikill áhugamaður um skák komst hann í bréfasamband við tvo menn í Grímsey. Þar með hófst vináttusamband hans við eyjarskeggja sem varði meðan hann lifði.
  • Árið 1901 færði Fiske Grímseyingum stórt bókasafn sem hann nefndi Eyjarbókasafnið. Það er nú varðveitt í bókasafni skólans í upprunalegum bókaskápum.
  • Í erfðaskrá sinni ánafnaði hann Grímseyingum veglegan peningasjóð, Grímseyjarsjóð Willard Fiske, til að endurbæta húsakostinn og bæta mannlíf í eyjunni og í þakklætisskyni voru nokkrir drengir í Grímsey skírðir eftir honum. Í eyjunni er minnismerki um Fiske er eftir Gunnar Árnason myndhöggvara og var gefið af Kiwanisklúbbnum Grími. Það var afhjúpað þann 11. nóvember 1998.

Látið hjarta Akureyrar í friði

Guðjón Heiðar Pálsson skrifar
01. júlí 2025 | kl. 06:00

Fiskeldi og samfélagsábyrgð

Eyjólfur Ármannsson skrifar
30. júní 2025 | kl. 09:45

Hver borgar brúsann?

Ingibjörg Isaksen skrifar
28. júní 2025 | kl. 12:00

Börn eiga skilið að alast upp í friði – þrátt fyrir breyttar aðstæður

Halldóra K. Hauksdóttir skrifar
25. júní 2025 | kl. 16:30

Fréttir af baggavélum og lömbum

Heiða Ingimarsdóttir skrifar
25. júní 2025 | kl. 06:00

Leiðrétting veiðigjalda – tækifæri, ekki árás

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
24. júní 2025 | kl. 16:00