Börn eiga skilið að alast upp í friði – þrátt fyrir breyttar aðstæður

„Það er ekki skilnaðurinn sjálfur sem veldur mestum skaða heldur hvernig staðið er að honum gagnvart börnunum.“ Ég verð aldrei þreytt á því að segja þessa setningu því hún er jafn mikilvæg og hún er sönn.
Við í félagsþjónustunni á Akureyri viljum fá að minna á vefsíðuna www.samvinnaeftirskilnad.is.
Fyrir þau sem ekki þekkja til er SES (samvinna eftir skilnað) gagnreynt, stafrænt fræðslusefni sem styður við foreldra í kjölfar skilnaðar eða sambúðarslita. Markmið SES er veita foreldrum verkfæri til að hjálpa sér og börnum sínum að fara í gegnum þessar breytingar á sem jákvæðastan hátt, og draga um leið úr ágreiningi milli foreldra.
Fræðsluefnið er byggt á rannsóknum og samanstendur af kennsludæmum, verklegum æfingum og ígrundun um eigin líðan og hegðun. Í gegnum fræðsluna gefst foreldrum tækifæri til að skoða sjálft sig og samvinnuna við hitt foreldrið með þarfir barnanna í forgrunni. Á vefnum eru líka myndbönd sem aðstoða við að hefja samtal við börnin um skilnaðinn, ásamt áminningum að hlusta á börnin.
Nú hefur nýjungin SES NXT bæst við, sem sérstaklega er ætluð börnum og unglingum. Með því að skrá sig í NXT fá börn ráðleggingar um hvað þau geta gert þegar foreldrar þeirrar eru ósammála, hvernig þau geta skilið tilfinningar sínar og hver réttindi þeirra eru í samsettri fjölskyldu.
NXT efnið er sniðið eftir aldri barnanna og einnig er þar hægt að finna námskeið sem þau tengja við – hvort sem þau eiga foreldra sem rífast mikið, búa á tveimur heimilum eða eiga samsetta fjölskyldu. Eins eru þar hugmyndir um hvað börn geta sagt við foreldrana í ákveðnum aðstæðum. Af nógu er að taka.
SES MINI er svo fyrir yngsu börnin, þ.e. 3 til 5 ára. Þar eru námskeið sem foreldrar geta farið í gegnum með börnum sínum. Þar eru góð ráð fyrir foreldra um hvernig við getum talað við barnið um líðan þess og tilfinningar.
Stór hluti barna á Íslandi upplifir skilnað foreldra, en þótt það sé algengt er það ekki endilega auðvelt. Mörg börn upplifa að foreldrarnir geri sér ekki grein fyrir hvernig þeim líður og að enginn skilji þau. Skiptidagar, þegar börnin yfirgefa annað heimilið um tíma, reynast mörgum börnum erfiðir. Slíkum dögum geta fylgt blendnar tilfinningar – tilhlökkun að fara til annars foreldrisins en á sama tíma söknuð yfir því að vera að fara. Í skilnaðarfjölskyldum getur oft verið erfitt að tala hreinskilningslega um samkomulag um umgengni og hefðir. Mörg börn eru hrædd um að særa foreldra sína ef þau gefa upp hvernig þau vilja hafa skiptinguna milli heimila. Þarfir barns breytast með aldrinum og því mikilvægt að foreldrar og annað fólk í umhverfi þeirra sé til í að breyta samkomulaginu, jafnvel þótt það geti verið erfitt tilfinningalega.
Við foreldrar gegnum lykilhlutverki í því að styðja börnin okkar í kjölfar skilnaðar. Ég vil því hvetja foreldra til að leiðbeina og hvetja börn sín til að skrá sig inn á SES vefinn, þar sem þau geta fengið aðstoð við að vinna úr þeim tilfinningalega vanda sem oft fylgir skilnaði. Enn fremur hvet ég öll sem tengjast börnun til þess að fara inn á vefsíðuna, sérstaklega ef fjölskyldan hefur gengið í gegnum skilnað. Aðgangur að SES er ókeypis og auðvelt er að skrá sig inn og fá þannig aðgang að 19 stafrænum námskeiðum. Upplýsingarnar sem beðið er um við innskráningu eru ekki persónurekjanlegar.
Ég óska þess af öllu hjarta að við, foreldrar og samfélagið á Akureyri, sameinumst um að vera fyrirmynd í samvinnu eftir skilnað. Börnin okkar eiga skilið að alast upp í friði, virðingu og góðum samskiptum – þrátt fyrir breyttar aðstæður.
Halldóra K. Hauksdóttir er forstöðumaður félagsþjónustu hjá Akureyrarbæ


Leiðrétting veiðigjalda – tækifæri, ekki árás

Stöðvum áætlanir um sjókvíaeldi í Eyjafirði!

Áhættusöm afturför í nafni framfara

Á flandri í klandri
