Fara í efni
Pistlar

Súrmatur á Hofi

EYRARPÚKINN - 86

Hún var mikil um sig matarkista heldra fólksins á Hofi en kista vinnufólks að sama skapi mjóslegin og pasturslítil.
 
Fyrir heldri kistunni voru járnspengur og gylltir lásar en sveru reipi slungið um kistu vinnufólks og lutu kisturnar arnaraugum Hofsmaddömunnar.
 
Vinnumenn á Hofi földu sláturkeppi og bjúgu uppi í heystabba í kúahlöðunni á Hofi. Þá kemur séra Einar, tekur í stabbann, detta keppir af stabbanum en vinnupiltar skömmustulegir.
 
Etiði bara eins og þið getið strákar mínir sagði séra Einar en komið til mín en ekki séra Jakobs eða frú Guðbjargar.
 
Pabbi stakk stundum inn höfði á smíðaverkstæði Axels nágranna okkar úr Ægisgötu 15 en vinnustofa Axels var við hlið Heiðreksbúðar á horni Eiðsvallarins og Norðurgötu.
 
Kannski var pabbi að koma frá Nabbna í Laxagötu hýr af snöfsum, allar götur var leikur í honum þegar hann upplýsti Axel um hvernin þeir piltar á Hofi stóðu að hurðarbaki í skammdeginu þegar frú Guðbjörg opnaði búrið og blésu út ljósið á kolu hennar.
 
Hrifsuðu vinnumenn slátur og súrmat annan og voru horfnir í myrkrið þegar maddaman birtist með koluna á ný.
 

Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.

    • Á sunnudögum um langa hríð birti akureyri.net kafla úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki Jóhanns Árelíuzar sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003. Súrmatur á Hofi er kafli úr bókinni Sveskjur í sólarlaginu, síðari bók Jóhanns um Eyrarpúkann en þar segir einkum frá dvöl drengsins á æskuslóðum föður hans í Vopnafirði. Bókin kom út 2010.

Lárheggur. Sígrænn, blómstrandi krúttrunni

Sigurður Arnarson skrifar
13. maí 2026 | kl. 09:30

Glímt við Selána

Jóhann Árelíuz skrifar
10. maí 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Sæborg í Glerárþorpi

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
09. maí 2026 | kl. 06:00

Attenborough og trjávernd

Sigurður Arnarson skrifar
08. maí 2026 | kl. 21:00

Að bjarga heyi. Skáldin um landlæsi

Sigurður Arnarson skrifar
06. maí 2026 | kl. 18:00

Persónuleiki og fíkn

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
06. maí 2026 | kl. 06:00