Fara í efni
Pistlar

Forsetinn heimsótti FFA – afmælishátíð í Dreka

Forsetahjónin í heimsókn hjá Ferðafélagi Akureyrar í gær. Frá vinstri: Kristín María Hreinsdóttir starfsmaður FFA, Gunnar Már Gunnarsson formaður félagsins, Björn Skúlason eiginmaður forseta, Einar Hjartarson ráðsmaður, Fjóla Kristín Helgadóttir stjórnarmaður í FFA, Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Þorgerður Sigurðardóttir fyrrverandi formaður FFA.

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og eiginmaður hennar, Björn Skúlason, heimsóttu Ferðafélag Akureyrar (FFA) í gær í tilefni 90 afmælis félagsins. Hjónin litu síðan við á Landsmóti skáta að Hömrum og í kvöld verða þau viðstödd formlega setningu bæjarhátíðarinnar Mærudaga á Húsavík.

Ferðafélag Akureyrar var stofnað 8. apríl árið 1936 og tímamótanna er minnst með ýmsum hætti, svo sem fyrirlestrum, skráningu gönguleiða og greinum  á akureyri.net fyrr á árinu þar sem fjallað var um eitt og annað úr merkilegri sögu félagsins – sjá hér: Ferðafélag Akureyrar. Á sunnudaginn verður svo afmæliskaffi FFA í einum skála félagsins, Dreka í Drekagili.

Öllum félagsmönnum og velunnurum FFA er boðið á þennan sérstaka afmælisviðburð á fjöllum; í Öskju og Dreka. Dagskráin hefst með samverustund og göngu að Öskjuvatni og Víti. Gengið verður frá bílastæðinu við Vikraborgir kl. 13.00 – það er um 2 klukkustunda ganga í það heila. Að göngu lokinni er síðan ekið aftur í Drekagil og þar boðið upp á afmæliskaffi kl 15:30.

Of gamall til að greiða atkvæði

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
01. ágúst 2026 | kl. 06:00

Gráelri og náskyldar tegundir

Sigurður Arnarson skrifar
29. júlí 2026 | kl. 10:30

Hvað er sjálfsrækt?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
28. júlí 2026 | kl. 06:00

Eyðum tómlæti í garð Hámundar heljarskinns!

Orri Páll Ormarsson skrifar
24. júlí 2026 | kl. 06:00

Áhrif ísaldar á gráelrideildina

Sigurður Arnarson skrifar
22. júlí 2026 | kl. 12:30

Hafþyrnir - Hinn þyrnótti hestaljómi

Sigurður Arnarson skrifar
15. júlí 2026 | kl. 11:30