Fara í efni
Pistlar

FFA 90 ára: Súluferð í sparifötunum

Frá hefðargöngu á Súlur árið 2013. Ljósmynd: Hörður Geirsson.

Ferðafélag Akureyrar (FFA) áformar sérstaka sparifatagöngu á bæjarfjallið Súlur fimmtudagskvöldið 6. ágúst. FFA varð 90 ára á árinu og hefur af því tilefni efnt til fjölbreyttra afmælisviðburða og þessi óvenjulega gönguferð er ein af afmælisferðunum.

Í frétt á vefsíðu FFA um gönguferðina kemur fram að fyrirvari sé gerður um að veður verði gott, því félagið vilji fá fullt af fólki með í þessa ferð. Brottför er áformuð kl. 19 frá Súlubílastæðinu en þau sem vilja geta mætt við skrifstofu FFA, Strandgötu 23, kl. 18:30 þar sem hægt er að safnast saman í bíla.

Í fréttinni kemur fram að gengið sé eftir merktri og nokkuð auðveldri gönguleið á fjallið og af Súlum sé afar fallegt útsýni. Þá er tekið fram að  göngubúnaður þurfi að miðast við færi og aðstæður en þátttakendur eru beðnir um að koma í svolitlum sparifatnaði ef mögulegt er. Einnig eru þeir beðnir um að leggja eitthvað smávegis til í Pálínuboð þegar upp er komið en lagður verður út dúkur fyrir veitingar.

Gönguleiðin fram og til baka er um 11-12 km og gönguhækkun 880 metrar. Fararstjóri verður Gunnar Már Gunnarsson, formaður FFA, og þátttaka í ferðinni er ókeypis og öllum opin en þó þarf að skrá sig í ferðina á vef FFA.

 

Djúpslökun og töfrar Jóga Nidra

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 06:00

Afi og amma á Hraunfelli

Jóhann Árelíuz skrifar
01. nóvember 2026 | kl. 06:00

Elrið og þjóðsögurnar

Sigurður Arnarson skrifar
28. október 2026 | kl. 15:30

Mannúðarlánastefna og biksvartur húmor

Rakel Hinriksdóttir skrifar
28. október 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Hríseyjargata 6

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
28. október 2026 | kl. 01:30

Hús dagsins: Norðurgata 33

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
25. október 2026 | kl. 21:00