Skógar og votlendi

TRÉ VIKUNNAR - 115
Pistill í röðinni Tré vikunnar birtist vikulega á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga, alla miðvikudaga. Akureyri.net birtir brot úr hverjum pistli til að vekja athygli á skrifunum og hvetur fólk til að lesa meira á vefsíðu félagsins.
_ _ _

Skóglendi þakti stóran hluta Íslands við landnám en er nú aðeins svipur hjá sjón þótt að vísu horfi til betri vegar. Skógar hafa fjölbreytilegt dýralíf og veita trausta vernd gegn jarðvegsrofi. Eins og votlendið eru þeir mikilvægir fyrir vatnsmiðlun og kolefnisbúskap heimsins. Skógar hafa mikið útivistargildi og eru eftirsóttir fyrir sumarhúsabyggðir. Endurheimt votlendis og birkiskóga hafa lengi verið á meðal yfirlýstra markmiða stjórnvalda (Ólafur og Ása 2015) og þegar þetta er ritað bendir margt til þess að endurheimtin muni aukast á næstu misserum samanber þessa frétt frá 18. apríl.
Úlfur Óskarsson (óbirt) hefur bent á að mörgum hættir til að líta á skóga og votlendi sem andstæður. Ef skógur vex upp of nálægt óraskaðri mýri telja margir að hún hljóti að þorna og hverfa. Þess vegna telja sumir að votlendi skuli vera án trjáa og helst skuli það beitt svo tré fáist ekki þrifist.
Sennilega stafar ofangreint viðhorf fyrst og fremst af því að Íslendingar eru vanir skóglausu landi. Það er ekkert undarlegt, enda margir mannsaldrar síðan flestum skógum landsins var eytt. Fólk myndar gjarnan sterk tilfinningaleg bönd við þau svæði sem það þekkir. Einkum ef það telur þau vera náttúruleg og óröskuð (Úlfur, óbirt grein). Samt er það svo að nú er svo komið að skóglendi og kjarr á Íslandi þekur um 2% landsins en talið er að við landnám hafi villtir skógar þakið um 25% lands hið minnsta en sumar heimildir segja að þekjan hafi ef til vill verið nær 40%. Fer þetta eftir því hvaða forsendur vísindamenn gefa sér. Til að líf fái þrifist sem best í votlendi og ám er mikilvægt að vistkerfin búi yfir eins miklum stöðugleika og seiglu og unnt er. Skógar hjálpa til við að veita hvoru tveggja (Wohlleben 2016).

Horft yfir Hundatjörn í Naustaflóa. Skógarnir í Naustaborgum allt í kring. Myndin er úr þessari skýrslu um fuglalíf í flóanum. Fram kemur í lokaorðum skýrslunnar að Naustaflói sé gott dæmi um endurheimt votlendis og fuglalífið þar sé í góðu jafnvægi, þó alltaf séu örlitlar breytingar á milli ára. Mynd: Sverrir Thorstensen sem jafnframt er aðalhöfundur skýrslunnar.

Votlendi

Horft yfir birkiskóg í Grýtubakkahreppi. Handan hans sér yfir votlendi og inn Eyjafjörð. Vel gróið land miðlar vatni og dregur úr hættu á þurrkum og flóðum. Mynd: Sig.A.
Votlendi hefur einnig verið ræst fram í þéttbýli vegna bygginga og gatnaframkvæmda. Víðast hvar er það þannig að það vatn sem fellur á malbikuð svæði á landinu er leitt í næsta holræsi. Það fær ekki einu sinni aðgang að vistkerfunum. Vegna þeirra neikvæðu umhverfisáhrifa sem framræsla veldur er mikilvægt að endurheimta votlendi sem víðast þar sem það er hægt og landið er ekki nýtt í annað. Það má vel gera samhliða skógrækt enda fara skógar og votlendi vel saman.

Melgresið horfir á Vaðlaskóg að spegla sig í Eyjafjarðará. Mynd: Sig.A.
Meira á vef Skógræktarfélagsins.
Sigurður Arnarson er í stjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga.
Smellið hér til að sjá allan pistilinn


Skúringar

Rauða platan

Ég gleymdi bestu gjöfinni... Og ljóðið endar hér.

Útvarpið okkar
