Fara í efni
Pistlar

Menntaskólinn fær 140 listaverk að gjöf

Hjónin Knútur Bruun og Anna Sigríður Jóhannsdóttir ásamt Karli Frímannssyni skólameistara á brautskráningarhátíð MA í Íþróttahöllinni í morgun. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Menntaskólanum á Akureyri hefur borist höfðingleg listaverkagjöf – um 140 verk – frá hjónunum Knúti Bruun og Önnu Sigríði Jóhannsdóttur. Um er að ræða megnið af þeim listaverkum sem eru í eigi hjónanna, verk af ýmsu tagi. Karl Frímannsson skólameistari greindi frá þessu á brautskráningarhátíð skólans í morgun. Knútur brautskráðist frá MA árið 1956 og fagnar því 70 ára stúdentsafmæli í ár.

„Einn dag á vormánuðum 2024 stóð maður inn á gólfi hjá mér á skrifstofunni, afsakaði sig og kynnti en hann hafði ekki gert boð á undan sér. Var þar kominn Knútur nokkur Bruun. Varfærnislega bar hann upp erindið en hann kom færandi hendi með listaverkabók sem hann var sjálfur að gefa út. Jafnframt vildi Knútur vita hvaða hug skólameistari bæri til þess ef skólanum yrði færð listaverkagjöf. Að vonum leist mér vel á það og sagðist hann ætla setja sig í samband við okkur síðar og gera betur grein fyrir erindinu,“ sagði Karl Frímannsson í ávarpi sínu í morgun.

Eitt verkanna sem Knútur og Anna Sigríður hafa fært MA að gjöf er þegar í húsakynnum skólans – tréskúlptúrinn To kontraster frá árinu 1982.

Varð að manni í MA

Karl hélt áfram: „Erindið var reyndar ekki lítið því þau hjónin Knútur Bruun og Anna Sigríður Jóhannsdóttir höfðu þá ákveðið að ánafna skólanum megnið af þeim listaverkum sem í þeirra eigu eru eða yfir 140 verk. Knútur varð stúdent frá MA árið 1956 og á því um þessar mundir 70 ára stúdentsafmæli. Af þakklæti til Menntaskólans á Akureyri er gjöfin gefin með því fororði að í MA hafi Knútur orðið að manni og skólavistin verið þroskandi bæði hvað menntun varðar en ekki síður varðandi vináttu og tengsl. Dvölin í MA fól í raun í sér undirbúning fyrir það að standa á eigin fótum til framtíðar og komast áfram í lífinu á eigin verðleikum í samfélagi við aðra,“ sagði skólameistari.

Knútur Bruun ávarpaði viðstadda á brautskráningarhátíðinni stuttlega í morgun.

„70 árum síðar er Knútur hér með okkur í dag ásamt Önnu. Af veikum mætti vil ég þakka fyrir þessa höfðinglegu gjöf,“ sagði Karl Frímannsson og bað hjónin að stíga á svið. „Ágætu heiðurshjón, hafið þökk fyrir þessa gjöf sem skólinn mun varðveita vel. Gjöfin mun vonandi efla vitund ungs fólks um listir og skapa tækifæri til að sýna myndlist af mörgu tagi og víkka þar með sjóndeildarhring og mannskilning þeirra sem fá að njóta.“

Að hverfa til einfaldleikans

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
26. september 2026 | kl. 06:00

Notkun og mikilvægi hafþyrnis

Sigurður Arnarson skrifar
23. september 2026 | kl. 11:20

Þurfum við alltaf að vera að verða betri?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 06:00

Neita að troða nikku í kokið

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
19. september 2026 | kl. 06:00

Takk fyrir mig, Akureyri!

Orri Páll Ormarsson skrifar
18. september 2026 | kl. 12:00

Þröngsýni, sjúkdómur hinna

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
16. september 2026 | kl. 20:00