Fara í efni
Pistlar

Verið viðstödd flest skólaslit MA frá 1949

Karl Frímannsson skólameistari MA færði Guðrúnu Hlín Þórarinsdóttur blómvönd við brautskráninguna 17. júní. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Tryggð MA stúdenta getur verið mikil og birst með ólíkum hætti, segir á vef Menntaskólans á Akureyri í morgun, þar greint er frá því að Guðrún Hlín Þórarinsdóttir, sem er fædd árið 1947, hafi verið viðstödd flest skólaslit frá árinu 1949! Þá fékk hún að vera viðstödd, tveggja ára gömul, þegar pabbi hennar, Þórarinn Björnsson, sleit skóla það ár. „Guðrún var stúdent frá MA árið 1967 og bjó hér á Akureyri fram til ársins 1971. Fram að þeim tíma var hún viðstödd skólaslit flest árin. Guðrún hefur mætt á hverju ári allar götur frá árinu 1987,“ segir á vef skólans.

„Það var ekki fyrr en um kvöldmatarleytið þann 16. júní að Guðrún sá fram á að komast norður þetta árið, beið ekki boðanna, lagði af stað rétt fyrir miðnætti og keyrði ein norður um nóttina. Skólameistari kallaði hana upp á svið við brautskráningu 17. júní til að taka við virðingarvotti frá MA fyrir tryggð hennar við skólann sem er einstök og skiptir MA máli. Og á næsta ári verður Guðrún 60 ára stúdent og kemur þá væntanlega til að fagna þeim tímamótum.“

Skógarbeit

Sigurður Arnarson skrifar
24. júní 2026 | kl. 10:10

Hús dagsins: Oddeyrargata 4

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
21. júní 2026 | kl. 06:00

Hlyntré við veggi

Sigurður Arnarson skrifar
17. júní 2026 | kl. 13:30

Hvað ef þú ert að standa þig betur en þú heldur?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
16. júní 2026 | kl. 06:00

Í minningu sláttumanna og línumerkjara

Orri Páll Ormarsson skrifar
12. júní 2026 | kl. 13:30

Skógarbotnsplöntur

Sigurður Arnarson skrifar
10. júní 2026 | kl. 11:30