Fara í efni
Pistlar

Ríkið: 20 milljónir í nýja Miðgarðakirkju

Frumdrög Hjörleifs Stefánssonar arkitekts að nýrri kirkju í Grímsey.

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita 20 milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til endurbyggingar Miðgarðakirkju í Grímsey. Kirkjan sem brann til grunna 22. september sl. var elsta bygging eyjarinnar, byggð 1867, og var hún friðuð árið 1990.

„Miðgarðakirkja hefur þjónað mikilvægu samfélagslegu hlutverki meðal Grímseyinga og eru íbúar staðráðnir í að reisa nýja kirkju sem geti nýst bæði við helgihald og til menningarviðburða,“ segir á vef Stjórnarráðsins.

„Áætlaður heildarkostnaður við byggingu nýrrar kirkju er um 100 milljónir króna en tryggingabætur nema um 30 milljónum króna. Þá hefur sóknarnefnd Miðgarðakirkju staðið fyrir fjáröflun þar sem þegar hafa safnast um 12 milljónir króna. Vonir standa til þess að framkvæmdir geti hafist næsta sumar og að ný kirkja verði tilbúin að utan í september þegar ár verður liðið frá brunanum.“

Miðgarðakirkja brann til kaldra kola í september. Ljósmynd: Karen Nótt Halldórsdóttir.

Jólin í eldgamla daga – Anna Lilja

25. desember 2025 | kl. 06:30

Jólahefðirnar mínar – Brynja Dís

25. desember 2025 | kl. 06:30

Jólin í eldgamla daga – Nökkvi Jón

25. desember 2025 | kl. 06:30

Jólahefðirnar mínar – Kári Fannar

25. desember 2025 | kl. 06:30

Hús dagsins: Aðalstræti 74

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
25. desember 2025 | kl. 06:00

Hástig líffjölbreytni: Skóglendi

Sigurður Arnarson skrifar
24. desember 2025 | kl. 06:00