Fara í efni
Pistlar

Morgunkaffi þingframbjóðanda

Ég sit hér með samanbrotinn þvottinn sem ég á eftir að ganga frá fyrir aftan fartölvuna, ég er með kaffið og símann við höndina. Við hliðina á mér í stofunni nagar pollrólegur hundurinn beinið sitt á meðan æstur kettlingurinn nagar í buxnaskálmarnar á mér. Börnin eru farin í skólann og eiginmaðurinn í vinnuna.

Ég er í framboði til Alþingis og ég ætla að skrifa greinar um þau málefni sem ég brenn fyrir. Ég vil skrifa um heilbrigðiskerfið, loftslagsmálin, hringrásarhagkerfið, atvinnumál, þjónustu við aldraða, kynferðislegt áreiti og ofbeldi, tækifærin á landsbyggðunum og geðheilbrigðismálin. Ég vil skrifa um mannúðlegra samfélag þar sem kærleikurinn er megin drifkrafturinn. Ég vil skrifa um að ég brenni fyrir því að að vera þátttakandi í því að skapa betra samfélag fyrir okkur öll. Ég les yfir það sem ég hef skrifað og hugsa um það hvernig stuttar greinar hljóma nærri alltaf eins og hálfgerð froða.

Ég stend upp, hundurinn vill ólmur komast út í garð og kettlingurinn eltir æsispenntur. Ég sest aftur við tölvuna. Hvernig kem ég því í orð að ég telji að stjórnmálin snúist um grundvallar hugmyndafræði, forgangsröðun fjármuna, heiðarleika og vinnusemi? Að þau snúist ekki um finna einn leiðtoga sem hefur öll svörin, heldur um aukna samvinnu, fagmennsku og lýðræði. Að stjórnmál snúist um að gefa kost á sér til þess að að vera auðmjúkur þjónn samfélagsins. Þjónn sem hlustar, jafnvel helmingi meira en hann talar.

Kannski mun það sem ég hef fram að færa ekki henta sem slagorð í blikkandi ljósaskilti. Ég gef hins vegar kost á mér til þess að vinna af heilindum fyrir samfélagið mitt. Ég býð fram krafta mína til þess að fylgja eftir markmiðum þeirrar metnaðarfullu kosningastefnu sem við hjá Samfylkingunni höfum nú lagt fram. Stefnu sem byggir á hugmyndafræði um aukinn jöfnuð, frelsi og réttlæti.

Ég loka tölvunni, gef dýrunum að borða og held áfram að hugsa, hugsa um framtíðina

Hilda Jana Gísladóttir er í öðru sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 25. september.

Íslensk meðvirkni

Sigurður Ingólfsson skrifar
03. júní 2023 | kl. 06:00

Sparilundur í Vaðlaskógi

Sigurður Arnarson skrifar
31. maí 2023 | kl. 10:10

Luton Town – af upprisu

Arnar Már Arngrímsson skrifar
29. maí 2023 | kl. 12:00

Flæði

Haukur Pálmason skrifar
29. maí 2023 | kl. 11:00

Hús dagsins: Grundarkirkja

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
28. maí 2023 | kl. 19:00

Skógar og ásýnd lands

Sigurður Arnarson skrifar
27. maí 2023 | kl. 16:00