Fara í efni
Pistlar

Löglegt mark KA fékk ekki að standa

Boltinn kominn inn fyrir marklínuna eftir skot Samuel Kroon, sem liggur í markteignum. Kroon var ekki rangstæður þegar hann fékk boltann, öfugt við það sem aðstoðardómarinn taldi. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

KA-menn töldu sig hafa jafnað, 1:1, snemma leiks gegn Stjörnunni í 1. umferð Bestu deildarinnar í knattspyrnu í gær þegar Samuel Kroon kom boltanum í markið. Aðstoðardómarinn veifaði hins vegar flaggi sínu til merkis um rangstöðu – en nú hefur verið sýnt fram á að það var röng ákvörðun. Grátlegt fyrir KA því gestirnir komust fljótlega í 2:0 og unnu leikinn 3:2.

Emil Atlason kom Stjörnunni yfir strax á 4. mínútu. „Nokkrum mínútum síðar töldu KA-menn sig hafa jafnað leikinn. Jakob Héðinn átti góða fyrirgjöf fyrir markið, Guðjón Ernir kom boltanum inn á markteig og Samuel Kroon setti hann inn fyrir línuna. Aðstoðardómarinn flaggaði hins vegar rangstöðu og við fyrstu sýn virtist sú ákvörðun í meira lagi vafasöm,“ sagði Valur Sæmundsson í umfjöllun um leikinn á akureyri.net í gær.

  • Frétt Vísis – þar má sjá myndband af atvikinu í umfjöllun Sýnar Sport:

„Þetta er bara löglegt mark sem tekið er af KA“

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var að vonum svekktur eftir tapið en lýsti ánægju sinni með dómarann þrátt fyrir allt, enda ekki ákvörðun hans heldur aðstoðardómarans að „jöfnunarmarkið“ stóð ekki. Hann sagði Arnar Þór Stefánsson, dómara, hafa haft góð tök á leiknum.

„Svona gerist bara, ég nenni ekki að kvarta yfir því. Ég er virkilega ánægður með frammistöðu okkar á móti liði sem er spáð í efstu tveimur sætunum. Ég er ánægður með það en svekktur að fá núll stig,“ sagði Hallgrímur.

  • Viðtal fótbolta.net við Hallgrím Jónasson:

Mjög svekkjandi það sem ég heyri

  • Umfjöllun akureyri.net um leikinn í gær:

Stjarnan lagði KA í köflóttum leik

Verk gömlu meistaranna

Jóhann Árelíuz skrifar
12. apríl 2026 | kl. 06:00

Birki og beit

Sigurður Arnarson skrifar
08. apríl 2026 | kl. 08:00

Hús dagsins: Hafnarstræti 35

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
07. apríl 2026 | kl. 22:00

Þegar lífið hægir á manni

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
07. apríl 2026 | kl. 08:00

Höfðingsskapur á Hofi

Jóhann Árelíuz skrifar
05. apríl 2026 | kl. 06:00

Af húsaflutningum Ferðafélags Akureyrar

Hjalti Jóhannesson skrifar
04. apríl 2026 | kl. 10:30