Frábær fyrstu skref í Bestu deildinni
Þórsarar fengu sannkallaða óskabyrjun þegar þeir hófu leik í Bestu deildinni í knattspyrnu í dag, sunnudag. Nýliðarnir mættu Valsmönnum í Reykjavík og héldu heim á leið frá Hlíðarenda með þrjú stig í farteskinu eftir 2:1 sigur. Þeir lentu undir eftir tæplega hálftíma leik en Daninn Christian „Greko“ Jakobsen jafnaði 10 mínútum síðar og Ingimar Arnar Kristjánsson tryggði Þórsurum sigurinn og þrjú stig með glæsilegu marki þegar lítið var eftir af leiknum.
Þetta var fyrsti leikur Þórs í efstu deild síðan í október árið 2014. Sannarlega langþráð stund enda voru margir Þórsarar mættir í stúkuna, létu vel í sér heyra og vonandi verður sú raunin áfram. Það skiptir miklu máli, ekki síst þegar nýliðar eiga í hlut; sigurinn í dag var glæsilegur og verður lengi í minnum hafður en þegar gefur á bátinn verður enn mikilvægara en ella að stuðningsmenn standi við bakið á sínum mönnum.
Leikurinn byrjaði fjörlega, Þórsarar mættu með kassann úti, voru alls óragir en einhver nýliðaskjálfti virtist þó fyrir hendi og Valsmenn komust í ákjósanlega stöðu til að brjóta ísinn þegar um það bil 20 mínútur voru liðnar en nýttu sér það ekki.

Einar Freyr Halldórsson er aðeins 17 ára en lék mjög vel gegn Val í dag – og kom engum á óvart með þeirri frammistöðu. Mynd: Anton Brink.
SIGURMARK INGIMARS Í FRUMRAUNINNI

Myndir: Anton Brink
Ingimar Arnar Kristjánsson hefur verið í meistaraflokki Þórs í nokkur ár og líklega ekki allir sem átta sig á því að hann er ekki gamall; varð 21 árs í síðasta mánuði. Ingimari hefur stundum verið legið á hálsi fyrir að skora ekki nóg en Þórsurum er í fersku minni markið sem hann gerði í lokaumferð Íslandsmótsins í fyrra, sigurmarkið gegn Þrótti sem tryggði sigur í Lengjudeildinni og sæti í deild þeirra bestu, og í dag greip framherjinn svo sannarlega tækifærið þegar það gafst.
Ingimar kom inn á þegar tæpar 85 mín. voru liðnar skv. vallarklukkunni og aðeins um þremur mínútum síðar lá boltinn í Valsmarkinu eftir glæsilegt skot hans.
Ekki er annað hægt en dást að aðdraganda marksins. Ganverjinn Isaac Atanga, sem gekk til liðs við Þórsara á dögunum, kom af varamannabekknum rúmum 10 mínútum á undan Ingimari. Hann náði boltanum á miðjum vallarhelmingi Þórsara og tók á rás, Valsmaður reyndi að brjóta á honum og Atanga féll við en náði engu að síður að senda boltann fram á Ingimar. Framherjinn komst framhjá Jakobi Franz, óð í átt að vítateignum þar sem reynsluboltinn Hólmar Örn var til varnar en Ingimar sneri á hann og lét vaða á markið rétt innan vítateigs. Skotið var frábært, fast og hnitmiðað; boltinn fór neðst í bláhornið.




Fannar Daði Malmquist Gíslason (17) bjargar á marklínu undir lok leiksins á Hlíðarenda í dag. Myles Veldman skallaði að marki en Aron Birkir Stefánsson varði af stakri snilld, sló boltann út í markteig þar sem annar Valsari skallaði strax í átt að marki en Fannar Daði bjargaði. Yann Emmanuel Affi til vinstri. Mynd: Anton Brink
Margt var afar gott við leik Þórsara í dag. Þeir gleymdu hins vegar vörninni nokkrum sinnum; ef til vill má segja að þeir hafi verið of sókndjarfir, altjent lentu þeir í því að fáir voru til varnar þegar boltinn tapaðist framarlega á vellinum og Valsarar brunuðu fram í skyndisókn. Heimamönnum tókst reyndar ekki að nýta sér það en nýliðarnar verða að passa þetta; þeir geta ekki alltaf stólað á ævintýralega björgun Kristófers hægri bakvarðar Kristjánssonar, en tilþrif hans snemma í seinni hálfleik eru með þeim eftirminnilegri frá Hlíðarenda:
Eftir að Þór átti horn missti Ásbjörn Líndal boltann fyrir utan vítateig og tveir Valsarar tóku á sprett fram völlinn; Ásbjörn elti en Kristófer var sá eini til varnar, Tryggvi Hrafn Haraldsson hljóp með boltann frá miðjum vallarhelmingi Vals langleiðina að vítateig Þórs, gaf á Dag Orra sem skaut utarlega úr vítateignum, framhjá Aroni markverði sem kom út á móti, en Kristófer var mættur á hárréttan stað og bjargaði í horn.
Ekki er hægt að hugsa sér betri byrjun þá sem Þórsarar buðu upp á í dag. En enginn má ofmetnast, ekki leikmenn – og engin hætta ætti að vera á því – og alls ekki stuðningsmenn. Aðeins einn leikur að baki og þrjú stig komin í pokann en að sjálfsögðu ber að gleðjast!
- Það er skemmtileg staðreynd að af þeim 22 sem hófu leik á Valsvellinum í dag voru 10 sem hlutu fótboltalegt uppeldi í yngri flokkum Þórs, þar af tveir í liði Vals, Birkir Heimisson og Jakob Franz Pálsson.
- Í byrjunarliði Þórs voru átta „uppaldir“ í félaginu, allir nema varnarmaðurinn Yann Emmanuel Affi, miðjumaðurinn Christian „Greko“ Jakobsen og framherjinn Sebastian Heimvik Haugland. Sem sagt; Aron Birkir Stefánsson, Kristófer Kristjánsson, Ragnar Óli Ragnarsson, Ásbjörn Líndal Arnarsson, Einar Freyr Halldórsson, Atli Sigurjónsson, Ágúst Eðvald Hlynsson – sem lék reyndar aðeins upp í 5. flokk, en samt ... – og Sigfús Fannar Gunnarsson.
Birki og beit
Hús dagsins: Hafnarstræti 35
Þegar lífið hægir á manni
Höfðingsskapur á Hofi