Fara í efni
Pistlar

Ívar nær örugglega seldur til Breiðabliks

Ívar Örn Árnason fyrirliði KA hefur verið einn lykilmanna liðsins á síðustu árum. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Yfirgnæfandi líkur eru á að Ívar Örn Árnason, varnarmaðurinn öflugi og fyrirliði knattspyrnuliðs KA, verði seldur til Breiðabliks í Kópavogi á næstum dögum skv. heimildum akureyri.net. Ekki er útilokað að gengið verði frá samningi félaganna strax á morgun.

Ívar var ekki í leikmannahópi KA í dag þegar Íslandsmeistarar Víkings komu í heimsókn í Bogann í Lengjubikarkeppni KSÍ. Hann var á meðal áhorfenda og fylgdist með félögum sínum sigra Víkinga 2:0.

Fleiri íslenskt félög hafa borið víurnar í Ívar Örn undanfarið og þá var hann orðaður við lið í næst efstu deildum í Danmörku, Noregi og Svíþjóð fyrir skemmstu.

Ívar er uppalinn KA-maður og hefur verið einn af lykilmönnum liðsins undanfarin ár. Hann verður þrítugur í vor og samningur hans við KA rennur út að loknu þessu keppnistímabili. Ívar á að baki 73 leiki í efstu deild og hefur þrjú mörk í deildinni.

Verk gömlu meistaranna

Jóhann Árelíuz skrifar
12. apríl 2026 | kl. 06:00

Birki og beit

Sigurður Arnarson skrifar
08. apríl 2026 | kl. 08:00

Hús dagsins: Hafnarstræti 35

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
07. apríl 2026 | kl. 22:00

Þegar lífið hægir á manni

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
07. apríl 2026 | kl. 08:00

Höfðingsskapur á Hofi

Jóhann Árelíuz skrifar
05. apríl 2026 | kl. 06:00

Af húsaflutningum Ferðafélags Akureyrar

Hjalti Jóhannesson skrifar
04. apríl 2026 | kl. 10:30