Verk gömlu meistaranna
12. apríl 2026 | kl. 06:00
Handknattleikslið KA/Þórs hefur borist góður liðsstyrkur en Ingibjörg Hauksdóttir 19 ára markvörður hefur samið við liðið. Ingibjörg kemur frá norska félaginu Flint Tønsberg þar sem hún hefur spilað undanfarin 13 ár, að því er fram kemur í frétt á vefsíðu KA.
Í fréttinni segir að Ingibjörg sé afar spennandi og öflugur markvörður sem muni verða KA/Þór góður liðsstyrkur. Með Flint hefur Ingibjörg leikið í 2. deild auk U20 og U18 liða félagsins. Flint er sem stendur í 7. sæti í 2. deild og er liðið á leið í úrslitakeppni Norgesmesterskap í U19. Þá varð félagið bikarmeistari Austurlands í U20. Ingibjörg á einnig að baki landsleiki með U18 landsliði Íslands.